þriðjudagur, ágúst 17, 2010

Reykjavíkurmaraþon

Ágætu félagar,

Munið að skrá ykkur fyrir miðnætti á morgun 18. ágúst, á vef Reykjavíkurmaraþons (www.marathon.is). Endurgreiðsla frá Skokkklúbbnum miðast við að skráning í hlaupið fari fram fyrir þennan tíma.

Til að fá þátttökugjaldið endurgreitt þarf að áframsenda þátttökukvittun sem berst í tölvupósti til gjaldkera klúbbsins (fjolnir.arnason@icelandair.is) þar sem fram kemur reikningsnúmer, kennitala og vegalengd ef hana er ekki hægt að ráða af upphæðinni. Þá þarf einnig að klára hlaupið með bros á vör.

Athugið að skrá þarf í sveitakeppnina sérstaklega á vef hlaupsins. Þegar hafa einhverjar sveitir verið myndaðar. Notum þennnan þráð og 'comment' hér að neðan til að koma saman sveitunum í öllum vegalengdum og notum sveitaheitin Icelandair A, Icelandair B, osfrv. Samhliða þessum munum við taka saman lista á fimmtudaginn og raða í sveitir á grundvelli þátttökukvittana sem gjaldkeranum berast.

Icelandair Group mun styrkja Vildarbörn um 500 punkta fyrir hvern kílómeter sem starfsmenn hlaup. Skráið ykkar á myWork fyrir börnin.

Kveðja,
Dagur Egonsson
Formaður Skokkklúbbsins

7 ummæli:

  1. Fyrstu sveitin í hálfu maraþoni skipa:

    María Wendel
    Gudmunda Magnúsdóttir
    Anna Dís Sveinbjörnsdóttir

    Erum þið þá Icelandair A?

    Kveðja, Dagur

    SvaraEyða
  2. Ég var að skrá mig í hálf maraþon og vantar einhvern með mér í sveit. Ath, ég ætla ekki að keppa við klukkuna!

    SvaraEyða
  3. Ég Tómas Beck, Árni Már Sturluson og Sigrún Björg Ingvadóttir hlaupum heilt maraþon og skráðum sveitina sem Iceair aviators...

    SvaraEyða

  4. Ég ætla 1/2 maraþon ef eh vantar mjög fljótann hlaupara í sína sveit ;o)

    Kv. Sigurgeir

    SvaraEyða
  5. Ég er úr sveit...og þarf því varla að fara að skrá mig í einhverja sveit til að verða gildur limur.
    Kv. Bjútí

    SvaraEyða
  6. Er einhver sem vill vera memm í 10K sveit?
    Númerið mitt er 6321
    kv
    Rúna Rut

    SvaraEyða
  7. Þú hefur skráð lið í sveitakeppni í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
    Sveitin þín er skráð undir nafninu Icelandair
    Allir meðlimir sveitar hafa valið að hlaupa21 km hálfmaraþon
    Meðlimir þinnar sveitar eru:
    2053 - Jens Bjarnason
    1800 - Sigurgeir Már Halldórsson
    2097 - Sigurður Óli Gestsson

    SvaraEyða