fimmtudagur, september 29, 2011

Árshátíðin 2011 verður 14. október



Ágætu félagar.
Nú er það fastákveðið sem auglýst var að árshátíðin okkar verður haldin þann 14. október í húsakynnum Huldar Konráðsdóttur og fjölskyldu, Stigahlíð 52. Félagsmenn og makar eru hjartanlega velkomnir og hvattir til þess að mæta. Húsið opnar kl. 19:00 og klæðnaður er frjáls. Gott er hinsvegar að hafa í huga að snyrtimennska, hófsemi og prúðmennska eru eiginleikar sem sem flestir ættu að hafa að leiðarljósi þessa kvöldstund, sem og alla daga. Að venju verður aðalfundi skotið inn í annars skemmtilega dagskrá þar sem félagsmenn og makar gera sér glaðan dag með mat og drykk við hæfi. Skráning í gleðina fer fram hér í "comments", fyrir þriðjudaginn 11. október. Fjölmennum í stuði-
SBN f.h. stjórnar

13 ummæli:

  1. Uuuuu...mæti að sjálfsögðu með frúnna.

    Partý kveðjur, Dagur

    SvaraEyða
  2. Ég og Ása mætum á svæðið :o)

    Kv. Sigurgeir

    SvaraEyða
  3. Og við Úlfar!

    Kv.

    Bryndís

    SvaraEyða
  4. Sæli mætir, einfaldur eða tvöfaldur kemur í ljós á morgun !

    SvaraEyða
  5. Því miður verð ég fjarverandi, kominn til Forida að spila golf elskurnar, eigið skemmtilegt og ánægjulegt kvöld. Það verður rólegt á aðalfundinum þetta árið. kv/ jóhann úlfarsson

    SvaraEyða
  6. Ég mæti, einn eða þá jafnvel með konunni, kemur í ljós fljótlega.

    Ívar.

    SvaraEyða
  7. Ég mæti.

    Kv. Laufey

    SvaraEyða
  8. Ég mæti og mæti einn

    SvaraEyða
  9. Sveinbjörn mætir + Sigrún

    Kveðja,

    Sveinbjörn

    SvaraEyða