mánudagur, apríl 14, 2008

ASCA Róm

ASCA cross country var hlaupið í Róm við ágætar aðstæður í góðu veðri. Kvennaliðið lenti í öðru sæti og karlaliðið í þriðja sæti. Stefán Már þjálfari var í þriðja sæti í karlakeppninni. Liðið unir því sátt og glatt við ferðina og árangurinn.
Nánari upplýsingar um tíma og sæti verða settar hér á síðuna fyrir vikulok sem og myndir frá mótinu.
Minni keppendur á að skila umfram farseðlum til Sveinbjarnar Egilssonar. Það má líka skila þeim í umslag merkt Sveinbirni í afgreiðslu aðalskrifstofu. Keppnistreyjum má skila hreinum og fínum á sama stað. Þeir sem mæta á æfingu á fimmtudag geta skilað treyjum og farseðlum þá.
Góðar stundir,
Anna Dís

4 ummæli:

  1. Hæ allir Rómarfarar. Takk fyrir frábæra ferð!
    Sjáumst á æfingu.
    Okkar lið var fallegasta liðið ! Líka þið strákar..
    Kv. Sigrún

    SvaraEyða
  2. Takk fyrir frábæra ferð. Það voru sannkölluð forréttindi að fá að vera með ykkur í Róm. Okkur hlakkar til að hitta ykkur á hlaupum næstu daga.

    Kv. Sigurgeir & Ása

    SvaraEyða
  3. Hér getið þið séð nokkrar myndir (og skýringartexta):
    http://www.flickr.com/photos/jonmimir
    Takk fyrir frábæra ferð. Sjáumst.

    kv
    mímir

    SvaraEyða
  4. Innilega til hamingju með flottan árangur í Róm.
    Kv. Huld

    SvaraEyða