miðvikudagur, september 17, 2008

WARR 2008 - Myndir

Komin í mark. Á myndinni eru frá vinstri: Úlfar Hinriksson eiginmaður Bryndísar, Jens Bjarnason ITS, Jón Mímir Einvarðsson Jet-X (áður starfsmaður flugrekstrarsviðs Icelandair) og Bryndís Magnúsdóttir þjónustudeild. Sérstök athygli er vakin á nýtískulegum bol sem Mímir klæðist. Bolurinn mun hafa verið hannaður hjá Tískuhúsi Jóa Úlfars.

Bryndís tekur við fyrstu verðlaunum í sínum flokki eftir frábæran árangur í 10k hlaupinu. Við hin klöppuðum ákaft full af stolti. Bryndís, eins og reyndar við öll, átti mjög gott hlaup.

Sátum til borðs í gala dinnernum með hlaupurum frá South African Airways. Við héldum lengi vel að unga stúlkan við hliðina á Mími væri dóttir eins úr liðinu. Síðla kvölds kom í ljós að hún var búin að vinna hjá flugfélaginu í meira en áratug.

2 ummæli:

  1. Kannski var hún 5 ára þegar hún byrjaði. :)
    Kv. SBN

    SvaraEyða
  2. Já Sigrún mín. Þetta með konur og aldur og þau dularfullu lögmál sem þar liggja að baki verður seint skilið til fulls.
    Kveðja, -jb

    SvaraEyða