þriðjudagur, mars 31, 2009

Magnaður mars !

Þá er enn einn mánuðurinn að baki og í valnum liggja 218,3 km. Missti úr þrjá hlaupadaga (þar af tvo sunnudaga) sem heggur verulega í heildarmagnið. Hef samt náð að auka vegalengdirnar og stefni ótrauður á að hlaupa heilt maraþon í Mainz í Þýskalandi í maí. Gangi það eftir verða þó engin persónuleg met slegin, það er ljóst. Sem fyrr hef ég lagt aðaláhersluna á vegalengdir en hef þó tekið eina gæðaæfingu (tempo hlaup eða spretti) í hverri viku. Ég sakna þess mikið að geta ekki hlaupið með ykkur í hádeginu, það er oft erfitt að fara einn út í kuldann eftir langan vinnudag.

Í mánuðinum voru þetta alls 218,3 km á 15 hlaupadögum. Lengsta hlaup var 30,2 km. Þess má geta að ég náði að "hala inn stig" í fimm löndum utan heimalandsins í mánuðinum: Portúgal, Ítalíu, Bretlandi, Rússlandi og Lettlandi.

Hvernig gekk ykkur hinum?

Kveðja, Jens

5 ummæli:

  1. 267k (lengsti mánuður allra tíma)
    25 hlaupadagar
    26,2 lengsta hlaup
    1 borg utan Íslands - Malmö (SE)

    GI

    SvaraEyða
  2. 166,5k
    18 hlaupadagar
    lengst 14,4
    1 hlaup í BOS
    SBN

    SvaraEyða
  3. 211,6 km
    22 dagar
    lengst 21km
    allt hér á landi

    BM

    SvaraEyða
  4. Rosalegur kraftur er í Guðna. Er ekki málið að nýta formið og skella sér í heilt í vor.
    Kveðja, Jens

    SvaraEyða
  5. Kannski það sé planið.

    GI

    SvaraEyða