mánudagur, apríl 29, 2013

Hádegisæfing 29. apríl

Mættir: Huld, Þórólfur, Jón, Óli og Sigurgeir.

Formaðurinn fór Flugvallahringinn, Óli stefndi á 10k og rest fór rólega Hofs.

Heyrst hefur að líklegt sé að Cargo Kings mæti saman í Day After Run á föstudaginn. Eðlilega er mikil spenna í hópnum og lítið annað rætt þessa dagana en endurkoma Cargo Kings. Það verður að teljast líklegt að þátttökumet verði í Day After Run þar sem margir munu freista þess að hlaupa með Kings.

Ég vil svo minna alla á að mæta á fimmtudaginn og aðstoða við Icelandair hlaupið.

Kveðja,
Sigurgeir

3 ummæli:

  1. Já, hlaupaheimurinn bíður í ofvæni eftir konungum skokksins.

    Oddur nýliði

    SvaraEyða
  2. Verður bíll til taks?

    Kv, King

    SvaraEyða
  3. Já, sjúkrabíll, hjólastóll og Sigurjón með fyrstu hjálp.

    Oddur

    SvaraEyða