þriðjudagur, júní 25, 2013

Þriðjudagur 25. júní - Hvað er klukkan Úle?

Dagur, Huld, Bertel og Oddur nýliði mættu í dag.  Flugvallarhringurinn hlaupinn.  Bertel með rúma 7 km en hin með 8 km.

Þegar hópurinn nálgaðist höfuðstöðvarnar sást Gamle Úle á þeysireið í gagnstæða átt, þremur stundarfjórðungum eftir að aðrir lögðu af stað.  Ekki hefur enn náðst tal af Úle varðandi það hvert hann fór og af hverju klukkan hans er vitlaust stillt.

föstudagur, júní 21, 2013

Föstudagur 21. júní

Mættir: Ársæll, María, Dagur, Óli og Sigurgeir

Ekki er vitað um leiðir Maríu en Ársæll fór Hofs og skellti sér svo í sjóinn, vel gert hjá honum.

Three Amigos fór hefðbundin Miðbæ eins og venja er á föstudögum.

Kveðja,
Sigurgeir

Fimmtudagurinn 20. júní

Mættir: Dagur, Ársæll, Þórdís og Sigurgeir

Allir fóru einhverja útgáfu af Hofs.

Kv. Sigurgeir

miðvikudagur, júní 19, 2013

Miðvikudagur 19. júní - Sprækir félagsmenn

Huld, Dagur, Úle og Oddur nýliði hlupu í dag.  Langur rangsælis flugvallarhringur þar sem snúið var við á Eiðistorgi.  Góður gangur í mannskapnum og Úle og Huld spræk þrátt fyrir mikil hlaupaafrek síðustu dægrin.  Úle gerði sér lítið fyrir og hljóp tæplega 30 km í einum rikk um helgina og Huld lagðist til sunds í Gullsprettinum umhverfis Laugavatn.

Alls 11 km í frábæru veðri.

þriðjudagur, júní 18, 2013

Þriðjudagur 18. júní - Pólitískar U-beygjur

Dagur mætti pinnstífur á pinnann í hádeginu eftir sukk og svínarí í Þórsmörk nú um helgina.  Honum til skrafs og ráðagerðar var Oddur nýliði sem einnig var nokkuð pinnstífur og til í smá aksjón.  Ívar Buff ákvað að hvíla lóðin í dag og hlaupa þess í stað með þeim D&O, en lóðin virtust þó hefta för hans í búningsklefanum svo brottför hans tafðist nokkuð.

Dagur og Oddur nýliði hlupu allhart sem leið lá umhverfis flugvöllinn (rangsælis via Kaplaskjól).  U beygjur og aumt ástand í pólitíkinni var helst til umræðu, eftir því sem öndun og mæði leyfði.  Ívar hafði gefið til kynna að hann myndi fara via Suðurgötu og vonuðu D&O að þeir myndu sjá til kauða er þeir hlypu framhjá Suðurgötu við Ægisíðuna.  Á Ægisíðunni mætti þeim hins vegar aðeins (eins og oft áður í sumar) rigning og rok sem berjast þurfti í gegnum.  Ívar hafði greinilega haldið góðum dampi og var byrjaður eða teygja við höfuðstöðvar þegar D&O mættu þangað.

Vegalengdir frá ca. 7 km og upp í rúmlega 9 km.

föstudagur, júní 14, 2013

Föstudagur 14. júní - Bæjarrúntur

Meðlimir skokkklúbbsins lögðu af stað í fallegu veðri og var stefnan tekin niður í bæ.  Meðlimirnir voru Þórdís, Úle, Dagur, Oddgeir og Bertel, nei ég meina Sigurgeir (hlaupastíll Bertels og Sigurgeirs þykir áþekkur og blekkir marga eins og komið hefur fram).

Á gatnamótum á leið í bæinn skrúfaði snarruglaður maður niður rúðuna á bíl sínum og jós að því er virtist fúkyrðum yfir mannskapinn.  Menn áttuðu sig þó fljótt á því að þar var á ferð Hr. Lemon.  Komust menn um síðir að þeirri niðurstöðu að Hr. Lemon hafi verið að hvetja okkur til að kíkja fljótlega á sig á nýja staðnum sínum sem brátt verður opnaður á Laugavegi.

Aðrir meðlimir, þeir Sveinbjörn og "nýliðinn" Bertel, fóru sérleið.

fimmtudagur, júní 13, 2013

Hádegisæfing 13. júní

Mættir: Dagur, Jón Örn, Sigurgeir, Huld og Laufey.

Laufey er að læra á hvenær við byrjum, hún fór aðeins of snemma af stað!
Formaðurinn fór flugvallahringinn, er eitthvað að spá í leiðinni fyrir 2014...
Rest fór Hofs á þægilegu tempó-i og í brakandi blíðu.

Kveðja,
Sigurgeir

miðvikudagur, júní 12, 2013

Miðvikudagur 12. júní - Sterk innkoma "nýliða"

Dagur, Úle, Huld, 1/2 Cargo King, Oddgeir og Bertel mættu í hádeginu.

Rangsælis hringur um flugvöllinn þar sem Bertel fór um Suðurgötu, Huld og 1/2 Cargo King fóru um Hofsvallagötu og Dagur, Úle og Oddgeir fóru um Framnesveg.

Mikil ánægja var með framgöngu "nýliðans" Bertels en hlaupastíll hans minnir um margt á hlaupastíl Sigurgeirs Cargo King.  Sú spurning hefur vaknað hvort hann hafi mætt í æfingabúðir til Sigurgeirs áður en honum var sleppt á hádegisæfingarnar?

fimmtudagur, júní 06, 2013

Fimmtudagur 6. júní - Síams og ungarnir þeirra

GU þjófstartaði í dag og tók sína 10 kílómetra vestur í bæ á meðan Ársæll, sem þjófstartaði líka, lét sér nægja að beygja af inn á Hofsvallagötu og út á Ægisíðu.

Símas mættu svo á réttum tíma með ungana sína, þá Jón 2G og Oddgeir.  Þær pössuðu vel upp á drengina, svo vel að þeir fóru sér ekki að voða.  Ferningin fór sömu leið og Ársæll og náði honum á Ægisíðu.  Þar tjáði Ársæll þeim það að hann ætti að láta UG ná sér.  Því fór sem fór; ferningin skildi Ársæl eftir, og GU náði síðan Ársæli rétt fyrir höfuðstöðvar.

Svona í lokin.  Fréttst hefur að Dagur hafi dregið töluvert úr mætingu í hádeginu enda farinn að stunda aðra íþrótt af miklum móð.  Fréttaritara kom það nokkuð á óvart er hann frétti hvaða íþrótt þetta væri þar sem honum þótti hún ekki mjög "Dagsleg".  Umrædd íþrótt ku vera golf og ku Dagur bara vera nokkuð lunkinn eða "efficient" eins og talsmaður fréttarita komst að orði.

miðvikudagur, júní 05, 2013

Miðvikudagsæfing-Wheel of fortune


Þeir sem vildu njóta lukkunnar mættu í dag og fóru á lukkuhjólið með Síams, Fjölni og Óla.
Mikill fengur er að hafa þessa stráka sér til handargagns þegar allir aðrir karlmenn í lífi manns hafa yfirgefið mann.  Sumir vegna nennuleysis, aðrir vegna meintrar vinnu og enn aðrir vegna skorts á afsökunum.  En allavega var bálhvasst og nutum við félagsskapar gjaldkera KK en Gamle Ole þurfti að fara vestur fyrir Mela til þess að vindkælingin gæti náð hámarksvirkni á hárgreiðsluna.
Alls um 8K en GO með ca. 10
Kveðja góð,
SBN

mánudagur, júní 03, 2013

Hádegisæfing 03.júní

Mættir: Óli, Dagur og Fjölnir.

Leiðindaveður í dag og við leituðum skjóls í skógi. Samtals 7,4k

Kv, Fjölnir

föstudagur, maí 31, 2013

Föstudagur 31. maí - Hvað er með þetta veður?

Þórólfur, Dagur, Huld, Þórdís, Íben og Oddgeir mættu þennan síðasta dag maí mánaðar í sunnan roki og bílskúr.

Þórólfur, Þórdís og Íben fóru flugvallarhringinn rangsælis um Suðurgötu (ca. 7 km) en Dagur, Huld og Oddgeir fóru alla leið út að Eiðsgranda, beygðu svo inn á Keilugranda, í gegnum Frostaskjólið og þaðan út að Ægisíðu (ca. 10 km).

fimmtudagur, maí 30, 2013

Hádegisæfing 30. maí

Mættir: Dagur, Óli og Sigurgeir.

Undirritaður fór Hofs á meðan Hrútarnir fór 10K.

Kv. Sigurgeir

þriðjudagur, maí 28, 2013

Þriðjudagur 28. maí - Rock on

Mætt í dag voru Sigrún, Oddgeir, Úle, Bjöggi Bronco og Jón 2G.

Annar dagurinn í röð sem Jón 2G mætir.  Drengurinn er greinilega að komast í feiknaform þrátt fyrir óheilbrigt líferni um síðustu helgi sem snillingurinn Tom Cruise.

Bjöggi Bronco er líka allur að koma til þó hann þurfi enn sem komið er að styðja sig við hvíldarbekkinn þegar á Ægisíðuna er komið.  Fyrir þá sem ekki vita þá á Bjöggi sér fortíð úr solla rokkheimsins.  Hyggur hann á endurkomu í þeim efnum því gamla hljómsveitin hans er búin að bóka tónleika á sjómannadaginn.  Hljómsveitin sem um ræðir er Austurland að Glettingi og gerði hún það gott á síðasta áratug síðustu aldar.  Hér að neðan er hlekkur þar sem heyra má hljóðdæmi af tveim hitturum þeirrar ágætu sveitar.  Lögin eru Stúlkan við ströndina og Alein við tvö.

Austurland að Glettingi....Rock on!!!


Tríóið Austurland að Glettingi á góðri stund ásamt aðdáendum

mánudagur, maí 27, 2013

Hádegisæfing 27. maí

Mættir: Dagur, Huld, Óli, Rock of Ages (JGG aka Tom Cruise) og Sigurgeir

Fórum skógræktina í von um logn og betra veður.

Eins og kom fram í Fréttablaðinu í dag þá fór Hr. Lemon í búningapartý hjá fræga fólkinu um helgina og vann kosninguna um besta búninginn. Hérna er mynd af honum frá því á laugardaginn og dæmir nú hver fyrir sig!


Kveðja,
Sigurgeir

föstudagur, maí 24, 2013

Föstudagsæfing 24.5.

Mættir: Dagur og Sigrún.
Fórum bæjarrúnt og umræðuefnin voru mörg og skemmtileg; rassastækkanir, listdans, maraþonjakkar, hjólhýsamenning, "kolonihaver",  ráðherrar, heimsbókmenntir og fleira.
Semsagt, mjög fín æfing á góðum degi.
Kv. SBN

fimmtudagur, maí 23, 2013

Fimmtudagur 23. maí - Fo(u)r amigos

Já, þeir mættu í dag; Cargo Kings (báðir) ásamt Degi og Oddgeiri.  Allir í stíl í sínum fallega bláu Craft jökkum.  Þetta var fögur sjón, svona til að byrja með.  Cargo Kings voru bísperrtir framan af en þrek þeirra þvarr er leið á æfinguna (töluðu eitthvað um æfingaleysi og meiðsli).  Sá eldri þeirra var skynsamur og kaus að taka beygjuna umhverfis flugvöllinn við gatnamót Hringbrautar og Hofsvallagötu á meðan sá yngri og óreyndari reyndi að halda í við Dag og Oddgeir, sem beygðu af Hringbraut við Framnesveg.  Hópurinn safnaðist síðan saman við Kafara og hljóp taktfast til höfuðstöðva.

Meðalvegalengd hjá Cargo Kings var töluvert styttri en meðalvegalengd Dags og Oddgeirs.

föstudagur, maí 17, 2013

Föstudagur 17. maí - Í gegnum rokgjarnan Vesturbæ einn í hádegi ég hljóp

Undirritaður var sá eini (svo vitað sé) sem ómakaði sig við að mæta í hádeginu í dag, þrátt fyrir góðar aðstæður.

Það þýddi ekkert annað fyrir undirritaðan en að girða sig í brók og brokka af stað.  Leiðin lá vestur í bæ, Hringbrautina á enda og þaðan að Eiðistorgi á Seltjarnarnesi þar sem snúið var við og hlaupið í átt að Ægisíðu.  Markmiðið var að taka 10K á a.m.k. jafngóðu tempói og Dagur tók á miðvikudaginn, þegar hann mætti einn í hádeginu og hljóp 10.  Má segja að markmiðið hafi náðst.

Ritari skokkklúbsins

fimmtudagur, maí 16, 2013

Fimmtudagur 16. maí - Getraun dagsins

Hér á eftir fer getraun.

Mætt í dag voru Guðni, Dagur, Óli, Fjölnir CK, Huld og Oddgeir.  Rangsælis flugvallarhringur um Suðurgötu með einum perra við Lynghaga, fyrir þá sem vildu smá tempó (markmiðið að ná hinum fyrir Kafara).  Þórólfur var seinn fyrir, fór svipaða leið og hin og skilaði sér til höfuðstöðva rétt á eftir þeim.

Nú bar svo við að einn ofangreindra upplýsti snemma hlaups með allmiklum þunga að hann hefði nýlega orðið fyrir aðkasti barns úr Hjallastefnunni.  Aðstæður voru þær að umræddur aðili var á hlaupum við Öskjuhlíð og átti stutt eftir af æfingunni þegar barnið úr Hjallastefnunni, sem var þarna á göngu með samnemendum sínum og leiðbeinendum, vatt sér að honum og sagði "hæ afi".  Já, barnið sagði "hæ afi"!!  Og um þetta snýst getraun dagsins.  Var það Guðni, Dagur, Óli eða Fjölnir CK sem mátti þola þessi óvægu og samviskulausu ummæli.  Vinsamlegast svarið getrauninni hér til hliðar.  Rétt svar verður tilkynnt að hvítasunnuhelgi lokinni.

þriðjudagur, maí 14, 2013

Þriðjudagur 14. maí - Men only

Í dag hlupu aðeins karlar og var það vel.  Rangsælis flugvallarhringur.  Dagur æsti hluta dáðadrengja til tempóhlaups frá horni Hringbrautar og Hofsvallagötu að Kafara.  Draumamarkmiðið var að ná öðrum Kargó konungnum sem fór um Suðurgötu, konungi sem nýlega kom í leitirnar eftir laaaaaanga fjarveru.  Dagur öskraði á mannskapinn á meðan tempóhlutanum stóð, svo mikill var áfkafi hans.  Lét hann sér það í léttu rúmi liggja þó einn úr hópnum reyndi að stynja upp úr sér á milli djúprar öndunar að hann hefði verið á tvöfaldri æfingu í gær.  "Þú getur bara hvílt þig í kvöld" var svar Dags.  Kargó kóngi tókst að halda andlitinu því þrátt fyrir hvatningaöskur Dags tókst mönnum ekk að ná í skottið á honum fyrir Kafara, þó ekki hafi munað miklu.

Á Ægisíðu mættu menn Björgvini nokkrum Bronco að teygja og toga við bekk.  Hann vildi ekki slást í för en skilaði sér engu að síður í höfuðstöðvar á skikkanlegum tíma.

Þá fréttist að formaður skokkklúbbsins hefði ætlað að fara út í hádeginu en hefði hætt við og beðið GPS hlaupaúrið sitt að taka hlaupið fyrir sig.

mánudagur, maí 13, 2013

Hádegishlaup 13. maí 2013

Fullt af hlaupurum í ósamstæðum fötum hlupu ósamstæðar vegalengdir.

Óli - Hofsvallagötu
Matti - Suðurgötu
Ársæll og Þórdís - Miðbær
Dagur, Guðni og Huld - Sjávarsíðan að Hofs og til baka
Bjöggi - Til og frá Nauthólsvík með 45 mín þrekæfingum
Sigrún Birna - andlegur stuðningur og hvatning við ræsingu

Veður með besta móti

GI

föstudagur, maí 10, 2013

Freaky Friday 10. maí

Mættir í dag: Einungis þeir sem pössuðu inn í litapallettu dagsins, hinir voru strax sendir heim. 
Komumst að því á miðbæjarbröltinu að textavélin á Óla hefur of marga skjátexta pr. mynd.  Þetta þarf að laga.  Fundum einnig út að ef stunduð er skíðaíþrótt í samvinnu við GPS tæki og mælingin fer yfir 60km er um svokallað "sírennsli" að ræða (höf. Dagur).  Þá gildir einu hvort hluti mælingarinnar fellur inn í ferðatíma í lyftu eða beint rennsli á skíðum.  Svo kom í ljós að þeir sem "lúkka" best og eru mest tanaðir nota Orobronze eða Oroblu brúnkukrem.  Það þolir nokkra þvotta en best er að sleppa alveg baðferðum ef fyrirbyggja á lýsingu.
Í lok hlaups kom æstur ljósmyndari á staðinn við annan mann og heimtaði að fá að taka mynd af hópnum.  Hyggst hann nota myndina á forsíðu blaðsins Bleikt og Blátt, en risaafmælisúgáfa er einmitt í prentun núna.  Þetta vakti ómælda kátínu félagsmanna, eins og glögglega má sjá. Óþarft er að kynna félagsmenn myndarinnar en aðrir félagar, sem ekki bera skynbragð á rétta litasamsetningu, eru hvattir til að kynna sér búninga- og útlitsreglur félagsins á innra neti.

Föstudagslagið
Alls milli 40-50k
Góða helgi-SBN

miðvikudagur, maí 08, 2013

Miðvikudagur 8. maí - 10K

Já þið lásuð rétt.  Í dag var einungis ein vegalengd í boði: 10 km = 10.000 m = 1.000.000 cm.

Til þessa hlaups valdist úrvalsfólk: Ársæll, ásamt dísunum sínum þeim Þórdísi og Önnu Dís, Óli, Dagur, Huld, Sigrún og Oddgeir.

Veður var frábært (er komið vor?) og allir kátir og sælir að loknu hlaupi.

Á morgun er frídagur enda uppstigningardagur, en á dönsku útleggst sá dagur sem Kristi himmelfart.  Góðar stundir.

þriðjudagur, maí 07, 2013

Þriðjudagur 7. maí - Annar kargókonunganna er fundinn!

Það bar helst til tíðinda á æfingu dag að annar kargókónganna kom í leitirnar.  Þegar gengið var á hann hvar hann hefði haldið til og af hverju hann hefði ekki mætt á síðustu æfingar, í ljósi stórra yfirlýsinga að undanförnu, baðst hann undan því að svara.  Létu menn það gott heita enda fegnir að vera búnir að endurheimta helming Cargo Kings teymisins.

Auk umrædds kargókóngs mættu Huld, Sigrún, Formi og Oddgeir, auk Óla sem spratt úr leyni í lok æfingar líkt og í gær.  Flestir fóru Hofsvallagötu, alls 8,6 km.

Enn er lýst eftir hinum kargókónginum sem gengur, eins og fram hefur komið, einnig undir gælunafninu Wheelie.  Sem fyrr eru allir þeir sem eitthvað vita um ferðir hans og hlaupaplön beðnir um að láta félaga hans í skokkklúbbnum vita.  Þeir sakna hans.

mánudagur, maí 06, 2013

Mánudagur 6. maí - Hvar eru Cargo Kings?

Ágæt mæting í dag.  Veður allgott, hiti í hærra lagi m.v. undanfarna daga; heiðríkja með smávegis af hressandi austanátt.  Gunnur, Dagur, Guðni, Huld, Sigrún og Oddgeir fóru á réttum tíma.  Ársæll og Bjöggi fóru líka, bara ekki á réttum tíma.  Fyrrnefndu fóru flugvallarhring via Suðurgata.  Rúmlega 7 km. Ekki náðst í Ársæl og Bjögga áður en blogg þetta fór í innslátt.  Svo má ekki gleyma Óla sem spratt fram úr leyni þegar hópurinn var að teygja að loknu hlaupi.

Annars lýsir lögreglan eftir Cargo Kings.  Þeir höfðu boðað komu sína á mánudagsæfinguna en hvorugur mætti á umræddum tíma.  Síðast sást til þeirra við vinnu við Icelandairhlaupið fimmtudaginn 2. maí sl.  Vitni töldu sig einnig hafa séð annan þeirra í "the day after run" á föstudeginum en það hefur ekki fengist staðfest.  Þeir sem telja sig vita um ferðir Cargo Kings eru vinsamlegast beðnir um að láta hlaupafélaga þeirra í skokkklúbbnum vita.

Mynd af þeim félögum.  Annar þeirra gengur undir gælunafninu Wheelie.

föstudagur, maí 03, 2013

The fabúlus Day after run


The fabúlus Day after run fór fram við frábærar hlaupaaðstæður í dag.  Alls voru skráðir 15 einstaklingar til hlaups en 8 fengu DNS.  Til að forða þeim frá enn meiri smán hefur verið ákveðið að nafngreina þessa einstaklinga ekki.  Annars sáust glæsilegir taktar í hlaupinu og hlupu sumir á tátiljum og flestir tóku gríðarlegan endasprett og jafnvel hefur því verið fleygt fram að Lemon börkur hafi komið mönnum framúr á lokasprettinum. 

Í karlaflokki voru úrslit sem hér segir:

1.       Þórólfur Ingi Þórsson              24:51:99
2.       Viktor Vigfússon                      28:04:41
3.       Ólafur Briem                             31:10:03
4.       Jón Gunnar Geirdal                  33:50:56
5.       Sigurgeir                                     33:50:58
6.       Jón Örn                                       DNF

Í Kvennaflokki var bara einn ótvíræður sigurvegari.  Fleiri náðu ekki í mark áður en það var tekið niður.
1.       Anna Dís                                      36:01:03

Í öðrum fréttum er það helst að Icelandairhlaupið fór fram í gær og skiluðu sér 351 einstaklingur í mark.  Einn veiktist á leiðinni og hátt í 50 einstaklingar fengu kvíðakast áður en hlaupið hófst og hlupu því ekki. 
Veður var annars með besta móti þrátt fyrir að snjóað hefði fyrr um daginn.  Nóg var af súrefni fyrir alla og súpa, brauð Soccerade og bananar fyrir alla eins og þeir gátu í sig látið.  Þeim sem okkur styrkja við þetta hlaup verður seint þakkað nægjanlega vel eða mikið. 
Fyrstur í mark var Kári Steinn á tímanum 21:29 og heldur hann því réttinum á nr. 1 á næsta ári.  Flott pace hjá Kára eða 3:04.  Fyrst kvenna var Ebba Særún Brynjars á 26:55 sem gerir pace upp á 3:51.  

kv.

Formi

þriðjudagur, apríl 30, 2013

Miðvikudagur 30. apríl - Gluggaveður

Heldur fámennt í fallegu en köldu veðri.

Sem fyrr kærði Ársæll sig ekki um að hlaupa með pöpulnum og dreif sig því of snemma af stað.  Sem fyrr fengust engar upplýsingar um það hve langt hann hljóp, en væntanlega voru það 7-8 km.

Sem fyrr fóru Síams og Oddur á tilsettum tíma.  Hlupu þau umhverfis flugvöllinn, alls 7 km. 

Hlúajárnið var ekki sem fyrr seinn fyrir og tók því smá sýnishorn af hlaupaæfingu eða ca. 5 km.

Dræm mæting að undanförnu hlýtur að þýða að menn hvíli þessa dagana fyrir The day after run nk. föstudag eða þá að menn séu orðnir svo grannir að þeir þurfi ekki að hreyfa sig lengur.

mánudagur, apríl 29, 2013

Hádegisæfing 29. apríl

Mættir: Huld, Þórólfur, Jón, Óli og Sigurgeir.

Formaðurinn fór Flugvallahringinn, Óli stefndi á 10k og rest fór rólega Hofs.

Heyrst hefur að líklegt sé að Cargo Kings mæti saman í Day After Run á föstudaginn. Eðlilega er mikil spenna í hópnum og lítið annað rætt þessa dagana en endurkoma Cargo Kings. Það verður að teljast líklegt að þátttökumet verði í Day After Run þar sem margir munu freista þess að hlaupa með Kings.

Ég vil svo minna alla á að mæta á fimmtudaginn og aðstoða við Icelandair hlaupið.

Kveðja,
Sigurgeir

föstudagur, apríl 26, 2013

Föstudagur 26. apríl - Einn dagur til kosninga

Bæjarrúntur í blíðu veðri með svaka six pack; Huld, Þórdís, Óli, Ívar, Sigurgeir og Oddgeir.  Ýmislegt skrafað, þar á meðal kosningarnar á morgun, og mis trúverðug kosningaloforð framboðanna.

Við höfuðstöðvarnar beið svo formaður vor.  Hann hafið brugðið sér á sérhannaða formannsæfingu, æfingu sem fátt er vitað um enda top síkret.

Sexmenningarnir hlupu 8 km en vegalengdin hjá formanni er top síkret.

mánudagur, apríl 22, 2013

Mánudagur 22. apríl - There is no such thing as a free lunch (revisited)

Dræm mæting í dag, alls fjórir aðilar, þar af þrír á tíma (Huld, Sigrún og Oddur nýliði) og eitt þjófstart (Alsæll).

Ástæða dræmrar mætingar kom í ljós við lok æfingar þegar þeir sem hlupu sáu aðra meðlimi klúbbsins streyma úr Þingsölum með vömbina úttroðna af samlokum og mæjónes út á kinnar.  Fremstur í flokki fór Úle von Pung sem ljómaði allur þar sem hann hélt á stafla af haganlega skornum rækjusamlokum sem hann tók með sér í nesti úr Þingsölum.  Hann, ásamt fleirum, hafði sem sagt verið á framboðskynningu stjórnmálaflokka sem þessa dagana berjast um hylli kjósenda.  Liður í því er væntanlega boð um vel útilátnar veitingar.  Er hugsanlegt að hér eigi við sígild mantra frjálshyggjumanna: "There is no such thing as a free lunch"?  Hver veit?

Alls 7 km hjá þremenningunum, en ekki fékkst upp úr Alsælum hve langt hann fór.

laugardagur, apríl 20, 2013

Föstudagur 19. apríl - Saga af móður og systur

Six pack mætti í dag, þó ekki nákvæmlega sama six pack og mætti á þrusuæfinguna sl. miðvikudag.  Six pack-ið í dag samanstóð s.s. af Huld, Siggu Bí, Úle von Pung, Johnnie Lemon, Bjögga Bronco og Oddi nýliða.

Veður var ekki eins og búið var að lofa en menn og konur létu það engin áhrif hafa á sig.  Menn héldu sig þó að mestu í og við Öskjuhlíðaskóg.  Menn héldu nokkuð jöfnum dampi (hraða) á æfingunni.  Einn hlauparanna gat þó ómögulega haldið í við hina og dróst því nokkuð fljótt aftur úr.  Deildar meiningar voru um það meðal hinna hvort ástæða væri til að bíða eftir honum eða ekki og fór í því sambandi að bera á umræðu um einelti, Stefán Karl og Regnbogabörn.  Að lokum hitti hópurinn hin meinta einelta inni í skógi og kom þá upp úr dúrnum að hinn meinti einelti varð dauðfeginn þegar hann sá hina hverfa úr augsýn.

Þá var komið að sögustund, sögustundar er vísar til fyrirsagnar þessa pistils, þ.e.a.s. sagan af móður og systur.  Sagan er eitthvað á þessa leið (giv or teik):  Síamssystur voru einhversstaðar sem fyrr á mannfagnaði.  Svífur þá á þær ævarforn aðdáandi annarar þeirra (aðdáandi Siggu Bí).  Upphefst nú töluverð reikistefna sem endar eitthvað á þá lund að aðdáandinn spyr, eftir að hafa virt Huld fyrir sér í þónokkra stund: "Er þetta dóttir þín, Sigrún?".

Ritarinn

fimmtudagur, apríl 18, 2013

Hið árlega Icelandairhlaup er á næsta leiti - Óskum eftir starfsfólki

Ágætu félagar í Skokkklúbbi Icelandair.

Hið árlega Icelandairhlaup verður haldið í 19. sinn fimmtudaginn 2. maí kl. 19:00.  Undirbúningur hlaupsins er nú þegar í fullum gangi.  Eins og áður vantar okkur röska félagsmenn til að vinna við hlaupið á hlaupadag enda í mörg horn að líta. Sú nýbreytni verður á hlaupinu í ár að notast verður við flögur við tímamælingu.

Félagsmenn sem geta mætt til vinnu 2. maí eru vinsamlegast beðnir um að skrá nafn sitt í ummælakerfið hér að neðan.  Mikilvægt er að félagsmenn mæti tveimur tímum fyrir hlaup eða kl. 17:00 svo hægt verði að útdeila verkefnum í tíma. Mæting er í höfuðstöðvar félagsins.
 
Við bendum á að þar sem hlaup þetta er skipulagt af skokkklúbbnum eru félagsmenn hvattir til þess verja frekar kröftum sínum þetta kvöld til vinnu við hlaupið í stað þess að taka þátt í hlaupinu sjálfu.  Félagsmenn eru jafnframt hvattir til að fjölmenna í staðinn í hádeginu daginn eftir og taka svokallað "the day after run" þar sem sami hringur er hlaupinn á tíma.

Þeim félagsmönnum sem vinna við hlaupið mun standa til boða að kaupa hágæða hlaupafatnað frá CW-X með styrk (niðurgreiðslu) frá skokkklúbbnum. Hlaupafatnaðurinn verður til sýnis og mátunar í hófi sem haldið verður strax að hlaupi loknu.

Með von um góð og skjót viðbrögð,
Stjórn Skokkklúbbs Icelandair

Hádegisæfing 18. apríl

Mættir: Þórólfur, á "recovery æfingu".  Ætlar svo á aðra æfingu í kvöld.  Hinir voru Jói og Sigrún.  Þau fóru Suðurgötu með spjallrásina opna. Yndislegt veður og frá mörgu að segja.
Kveðja,
Sigrún

miðvikudagur, apríl 17, 2013

117th Boston Marathon

Tveir félagsmenn hlupu þetta hlaup í gær:
Hér á eftir fara tímar Íslendinga sem náðu að klára hlaupið. Sprengjurnar sprungu um klukkustund eftir að Sigrún kom í mark. Eftir það var markinu lokað og algert öngþveiti ríkti í borginni. Heppni réði því að enginn Íslendinganna varð fyrir beinum áhrifum af meintum hryðjuverkum.
Röð - Allir
Röð - Kyn
Röð - Flokkur
Tími
Nafn
Aldur
247
228
28
02:38:48
Fridleifur Fridleifsson
43
315
294
39
02:41:04
Birgir Saevarsson
40
3979
3615
660
03:11:14
Petur Smari Sigurgeirsson
42
4223
413
352
03:12:30
Elisabet Margeirsdottir
28
4335
3893
230
03:13:07
Fridrik A. Gudmundsson
52
4955
584
483
03:16:11
Melkorka Kvaran
36
5911
5054
410
03:20:16
Karl Hirst
53
7008
5751
935
03:24:36
Hordur Gudjonsson
49
7239
1350
158
03:25:33
Olafia Kvaran
42
7374
1407
83
03:26:03
Huld Konradsdottir
49
7510
6046
50
03:26:36
Kjartan B. Kristjansson
60
8465
6598
265
03:30:03
Gautur Thorsteinsson
55
8469
1869
116
03:30:04
Ingibjorg Kjartansdottir
48
8760
2015
131
03:31:11
Berglind Johannsdottir
49
11406
7953
506
03:40:28
Magnus Jonsson
56
11735
3651
358
03:41:36
Sigrun Birna Nordfjord
46
12673
8496
1200
03:45:19
Jon Gunnar Jonsson
51
15940
6009
395
03:59:19
Erla Gunnarsdottir
50
17098
6737
48
04:08:41
Ingibjorg Jonsdottir
63
Skammvinn gleði ríkti eftir hlaupið en mest var glaðst yfir því að vera á lífi og komast heim sem er alveg nýr vinkill á því að sigrast á öllum kílómetrunum. Stundum fær maður harkalegar áminningar um það hvað mestu máli skiptir. Það gerðist þarna.

Bestu kveðjur,
Sigrún B.

Miðvikudagurinn 17. apríl - Six pack

Það voru sex naglar (six pack) sem mættu í dag: Dagur ðe tormentor, Guðni Muse, Johnnie Lemon, Anders fra Svergie, Úle fra Island og Oddur (nýliðinn).

Það að Johnnie Lemon skyldi mæta í dag dugði Degi til að blása í herlúðra hörkunnar.  Ekki skemmdi heldur fyrir að Anders fra Svergie mætti einnig en hann dvelur um þessar mundir hér á landi við æfingar, enda maðurinn á leið í Stokkhólmsmaraþonið 1. júní nk.  Gæðaæfingin fólst í rösku hlaupi út á Seltjarnarnes, tempóhringi (rúmlega 1700m) á Nesinu og svo rösku hlaupi til baka.

Rétt rúmir 10 km og ánægðir naglar í lok æfingar.

Ritarinn

föstudagur, apríl 12, 2013

Föstudagsæfing 12. apríl

Mættir: Sveinbjörn á eigin leið, Dagur, Óli, Huld og Sigrún.  Dagur og Óli fóru vestur í bæ en Huld og Sigrún fóru um Suðurgötu og miðbæ í átt að HL.  Um hvíldarhlaup var að ræða af þeirra hálfu. Ískalt veður en flennisól og tanið í hámarki. Not!
Góða helgi-
SBN
Indriði

miðvikudagur, apríl 10, 2013

Hádegishlaup 10. apríl 2013

Mættir:  Dagur, Guðni, Ívar, Ólafur

Leið:  HLL-Való-HLL samtals 10k

Veður:  Kalt en fallegt og fínt á leiðinni til baka

GI

þriðjudagur, apríl 09, 2013

Hádegisæfing 09.04.'13

Mættir á pinna:
Jón Örn, Dagur, Oddgeir, Jón Gunnar Geirdal-aka Mr. Lemon, Huld og Sigrún.
Fórum Suðurgötu með 2*2000m@mp.  Hvað það þýðir á íslensku veit enginn.  Æfingin var hin skemmtilegasta og sumarveður (rugl veður) í boði. Við mikinn fögnuð Dags fengu tvibbarnir nýtt nafn, eða Snuðra og Tuðra, og eru það réttnefni. Alls um 8 km.

Þórdís og sæluhúsið lögðu af stað löngu áður en þau máttu.  Þau fóru um Hofsvallagötu og fóru létt meða.

SBN

föstudagur, apríl 05, 2013

Afmælishlaup Bjögga Bjútí-s

Í dag var hlaupið til heiðurs BB, sem varð 39 ára í dag, einmitt á afmæli sínu.  Ótrúlegt en satt.  Hann fékk hádegisleyfi frá Belgjagerðinni og skokkaði tindilfættur með okkur niður í bæ um æskuslóðir sínar í Töfluholti, Pilluholti, Lyfjabrunni...Nei, Meðal(a)holti, hvar hann sleit barnsskóm sínum að hluta til.  Það hús virtist nú í eyði.  Síðan var haldið niður í bæ um Rauðarárstíg og Laugaveg og um Austurvöll og Hljómskálagarð.  Meðfylgjandi mynd er tekin þar hjá honum Jónasi okkar.  Hlupum síðan heim á hótel og göntuðumst við afmælisbarnið og fleiri.
Toppmæting í blíðunni:
Þórdís, Huld (myndasmiður), Ívar, Jón Örn, Guðni, Dagur, Oddgeir, Sigrún og Björgvin sjálfur.
Alls um 8km
Góða helgi, ;)
SBN

Til upplýsinga fyrir kvenkynsmeðlimi skokkklúbbsins - Kynning á íþróttabúnaði

Við vorum beðin um að koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri við kvenkynsmeðlimi skokkklúbbsins:

"Í tilefni af því að við vorum að taka í sölu verðlauna íþróttabrjóstarhaldara frá Panache, viljum við bjóða konum í skokkhópi Icelandair, á kynningarkvöld í Selenu fimmtudaginn 11. apríl frá kl. 18-20.

Við tökum vel á móti ykkur, léttar veitingar í boði og 20% kynningarafsláttur.

Þessi einstaki íþróttahaldari frá Panache minnkar hreyfingu brjósta um 83% og veitir þessi verðlauna hönnun hámarks stuðning og þægindi. Sjá meðfylgjandi fylgiskjal með nánari upplýsingum.

Við vonumst til að sjá sem flestar í versluninni Selenu, bláu húsunum við Faxafen (Suðurlandsbraut 50).

Kær kveðja,
Bryndís
S: 553-7355 og 695-4999"




fimmtudagur, apríl 04, 2013

Hádegisæfing 4.4.2013

Góðir hálsar.
Mættir voru Dagur, Óli og undirrituð.  Veður var með eindæmum gott, Valhúsahæðarhringurinn tekinn og umræðuefnið of krassandi til birtingar.  Frábær æfing í enn betri félagsskap.
Alls 10km
SBN
Filippus Bragi

miðvikudagur, apríl 03, 2013

Hádegisæfing 3. apríl

Mættir:
Ársæll, já fínt, já sæll...Þórdís og Anna Dís í forstarti á eigin vegum.
Hinir:
Oddur (nýliði), Gamle Ole, Dagur tískudrós, Huld, Sigrún, Bjöggi Bjútí og Johnny.  Fórum Framnesveg í 3-2-1 æfingu sem ekki má enskuskjóta.  Þrír kílómetrar á hálfmaraþonskeppnishraða, tveir kílómetrar á 10 kílómetrakeppnishraða og 1 kílómetri á 5 kílómetraog þiðþekkiðframhaldiðkeppnishraða. Frábært veður var og mikill ánægjuauki að sjá hversu prúðbúnir sumir komu til æfinganna.  Eftir kafla tvö féllu þessi frómu orð frá Óla (tekin úr bókmenntahorni Bob Morans):  "Mann, mann. Ich bin gespannt wie ein Regenschirm".  Túlki það hver á sinn hátt.
Alls  9,8km
Góðar stundir-SBN

þriðjudagur, apríl 02, 2013

Hádegishlaup 2. apríl 2013

Flestir gleymdu að hlaupa apríl. 

Þess í stað var tekin æfing gærdagsins í boði Viktors, 8*500m á 1:45-1:55.  Með Viktori hlupu Dagur og Guðni.  Ársæll og Þórdís voru fulltrúar S&M og fór á undan.

GI