Helgin hefur greinilega tekið sinn toll af mönnum. Aðeins tveir félagar, Sæll Formaður voru mættir á pinna í hádeginu í dag og sjaldan hefur fegurðarstuðullin verið svona hár. Voru menn í fantagóðu formi og hlupu meðal annars fram úr Forseta gönguklúbbsins og félaga vorum.
Fyrir þá fjölmögru sem ekki meikuðu pinna, er hér svolítið til að hjálpa mönnum af stað aftur....
http://www.youtube.com/watch?v=9vmWiuKz4e8
kv.
Formi
mánudagur, október 22, 2012
föstudagur, október 19, 2012
Ný hlaupadagbók
Gleðilega afmælisveislu comradar
Langaði bara til að benda félagsmönnum á að á hlaup.is síðunni er nú komin hlaupadagbók. ATH að það þarf að skrá sig inn á síðuna til að geta séð dagbókina. Hún er síðan undir hlaup flipanum sem Hlaupadagbók.
Formaðurinn er búinn að stofna hóp utan um okkur á síðunni, svo endilega verið dugleg að bæta ykkur í hópinn.
Annars óska ég þátttakendum í haustmaraþoninu góðs gengis og okkur öllum gleðilegrar afmælisveislu á morgunn. Munum bara að geyma smá orku í æfingar næstu viku.

þriðjudagur, október 16, 2012
Powerade#1
Fyrsta vetrarhlaup Poweradeseríunnar var haldið síðastliðinn fimmtudag í blíðskaparveðri. Úrslit okkar fólks fara hér á eftir:
Oddgeir 40:09
Ása 43:44
Huld 45:02
Sigrún Birna 47:38
Fjölnir 47:55
Jóhann Þ. 50:00 (fyrsta hlaup í seríu)
Rúna Rut 51:14
Jón Örn 52:51
Flottur hópur, til hamingju með þetta!
Ritarinn
Oddgeir 40:09
Ása 43:44
Huld 45:02
Sigrún Birna 47:38
Fjölnir 47:55
Jóhann Þ. 50:00 (fyrsta hlaup í seríu)
Rúna Rut 51:14
Jón Örn 52:51
Flottur hópur, til hamingju með þetta!
Ritarinn
Þriðjudagur 16. okt - Fimm þúsundkallar
Tókum fimmþúskjellinn (5*1000m tempósprettir)í dag, sem telst bara "létt æfing" ef allt er tekið með í reikninginn. Mættir vóru: Gunnur, sem hörfaði inn Suðurgötu, Johnny, sem þóttist ætla að hörfa, Dagur, sem reiknaði eitthvað út ca. hálfa leiðina, Guðni, sem hleypur fyrir Össur (í flugdeildinni, af því hann hleypur ekki), Oddgeir, sem hækkaði í stigagjöf í Powerade, ekki af því hann stóð sig svo vel heldur af því hann er svo gamall, Jói og baunagrasið, af því að hann er í vexti, Bjöggi og byssurnar, af því að hann er skotveiðimaður og SBN því einhver þurfti að ráða æfingunni. Það var a.m.k. mjög gott veður til þess að eyða fimmþúsund kallinum og allir stóðu sig með stakri prýði.
Over and out,
SBN
Vísindahornið- Kolkrabbar hafa sem kunnugt er 8 arma og mun 3. armurinn jafnframt vera limur hans. "That´s the reason the third one is so hard", í kolkrabbanum, sko...
Over and out,
SBN
Vísindahornið- Kolkrabbar hafa sem kunnugt er 8 arma og mun 3. armurinn jafnframt vera limur hans. "That´s the reason the third one is so hard", í kolkrabbanum, sko...
mánudagur, október 15, 2012
Mánudagur 15. okt - 10 litlir hlaupagikkir
Fín mæting í dag. 10 litlir hlaupagikkir hlupu hefðbundinn flugvallarhring um Hofsvallagötu í fínu veðri. Helst bar til tíðinda, hvað mætinguna varðar, að lærleggur (lærlingur) Úle, hann Pétur, mætti og dröslaðist hina rúmu 8 km þó óvanur væri. Úle fékk reyndar nokkrar ákúrur frá meðhlaupurum sínum um mitt hlaup fyrir óþarfa skrafhreyfni við kvenpeninginn í stað þess að fylgjast afdrifum lærlingsins.
Þá bar það einnig til tíðinda að týndi sonurinn, hann Sigurgeir, lét veikt k(h)né fylgja kviði og mætti eftir langa fjarveru. Var honum allvel tekið.
Alls rúmir 8 km og allir kátir og sprækir að hlaupi loknu.

þriðjudagur, október 09, 2012
Þriðjudagur 9. okt - Að vera náður eða ekki vera náður
Sex galvaskir, kiðfættir piltar úr Tungunum mættu á þriðjudagsæfingu. Dagur var með plan sem fólst í því að taka tempókafla inn í æfingunni þar sem hlaupið yrði frá horni Hofsvallagötu og Ægisíðu að "Kafara" (ca. 3.5 km) með mismunandi forgjöf/forskoti.
Eftir að menn höfðu gefið upp áætlað tempó fyrir tempókaflann var farið að reikna eftir kúnstarinnar reglum hvernær hver og einn skildi leggja af stað. Ef útreikningar væru réttir, og menn héldu sér á uppgefnu tempói, ættu allir að skila sér við "Kafara" á sama tíma. Það gekk ekki alveg eftir þar sem fremsti maður sprakk t.d. á limminu um miðja leið og hóf keppni í göngu. Að öðru leyti voru menn ekki svo langt frá þessu og skiluðu fjórir af sex sér nokkurn veginn á sama tíma við "Kafara".
Síðasta spölinn var svo tekinn "deddari" (rúmir 500m) í gegnum Öskjuhlíðarskóg með forgjöf.
Sem sagt alvöru æfing fyrir alvöru karlmenn.

föstudagur, október 05, 2012
Föstudagur 5. okt - íslensk Túnga
Þrí amígos, Úle, Dagur og Oddgeir, mættir í frábæru haustveðri, sól og hægviðri. Bæjarrúntur tekinn og margt skrafað þó einna helst um íslenska tungu. Einn í hópnum (getið hver) hefur sterkar skoðanir á því hvað svokallaðir fræðingar séu að vilja upp á dekk með því að segja okkur hinum hvernig eigi að tala og rita íslensku. Málfræðireglur og venjur eins og hvenær skuli rita stóran staf, einfalt i eða y, tíðir o.s.frv. eru að hans áliti einungis til trafala eðlilegri þróun íslenskrar tungu.
Spurður um það hvernig hann myndi t.d. skýra út á prenti hvort hann hefði séð fíl eða fýl svaraði hann eitthvað á þessa leið: "Ég sá fuglinn fíl". Ef um hitt dýrið var að ræða yrði ritað: "Ég sá fílinn fíl".

þriðjudagur, október 02, 2012
Þriðjudagur 2. okt - 2 sinnum 3000 kall
Það hafði kvisast út að æfingin í dag yrði gæðaæfing með stóru G-i og var mæting með besta móti, alls 11 manns + Sveinbjörn sem ákvað að ganga í hægðum sínum. Gestur æfingarinnar var hún Sibba, sem ætlar með Huld og Sigrúnu til Frankfurt í lok mánaðar að keppa í pylsuáti.
Lengdur flugvallarhringur (rangsælis), sem hófst á upphitun uns tempóhluti æfingarinnar tók við á Hringbraut (við gatnamót Hofsvallagötu). Hlaupið um Framnesveg, Kaplaskjól og þaðan inn á Ægisíðu. Tvö 3000 metra tempóhlaup með 3 mín hvíld á milli. Lauk ósköpum þessum ekki fyrr en við Öskjuhlíð. Eftir það var niðurskokk að höfuðstöðvum. Alls 10k.

mánudagur, október 01, 2012
Mánudagur 1. okt - Íslandsmeistarinn mætti
Enn í sigurvímu (og smá þynnku), eftir samfögnuð með sínum mönnum um helgina, mætti Fjölnir galvaskur til leiks og hljóp sigurhring umhverfis flugvöllinn. Sigrún, Þórdís og Oddgeir samglöddust honum og hlupu með honum. Formaður skokkklúbbsins samfagnaði einnig en hljóp aðeins hluta sigurhringssins.
Við komu að höfuðstövðum, eftir sigurhringinn, mættum við Úle með lærling að nafni Pétur sér til trausts og halds. Þeir tóku stuttu útgáfuna af hádegisæfingu. Ekki er enn vitað hvað Úle hyggst fyrir með lærlinginn.

Drög að æfingaáætlun fyrir ASCA vorið 2013
Mánudagar : Þrekæfingar til að byrja með, sambland af hlaupum og styrktaræfingum. Verður síðan skipt út með meiri hraðaæfingum eftir því sem líður á tímabilið.
Þriðjudagar : 'No Whining Tuesdays', hefðbundinn eltingarleikur eftir getu og nennu hvers og eins, Hofsvallagatan+ eða forgjafarhlaup
Miðvikudagar : Rólegt-recovery. Styttra en venjulega og endað með góðum teygjum.
Fimmtudagar : Erfiðar æfingar á fimmtudögum. Byrjum í brekkum (Kolkrabbinn, Kirkjugarðurinn, Öskjuhlíðarbrekkan, Stokkurinn m.m.) til styrktar en færum okkur svo meira yfir í sprettina eftir því sem líður á undirbúninginn.
Föstudagar : 'Freaky Friday' að hætti hússins með nýjan gestaþjálfara í hverri viku sem ræður för.
Reikna skal með löngu hlaupi um helgar og bent á hina fjölmörgu skokkhópa sem skipuleggja svoleiðis. Annars erum við líka með sms-lista sem hægt er að vera með á. Þess á milli eru síðan lyftingar, sund, hjólreiðar, göngur eða hvaðeina sem fólki dettur í hug að taka sér fyrir hendur.
Æfingaráætlunin gerir ráð fyrir að ekki mæti allir alltaf en þó þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi og allir geti hlaupið með. Þannig geti þátttakendur, á eigin forsendum og markmiðum, tekið ákvörðun um það hvernig tekið er þátt í æfingunum hverju sinni. Einnig er alltaf hægt að 'fara sér'.
Stjórn skokkklúbbsins.

sunnudagur, september 30, 2012
Aðalfundur og árshátíð Skokkklúbbs Icelandair
Aðalfundur og árshátíð Skokkklúbbs Icelandair verður haldinn með pompi og
prakt föstudaginn 2. nóvember. Nánari upplýsingar um staðsetningu og
tímasetningu verða birtar er nær dregur viðburðinum.
Stjórn skokkklúbbsins auglýsir jafnframt eftir velviljuðum félagsmanni sem er tilbúinn að hýsa aðalfundinn og árshátíðina. Þeir sem eru tilbúnir, vinsamlegast setji sig í samband við undirritaðann sem fyrst.
Kveðja, f.h. Skokkklúbbs Icelandair,
Oddgeir
Ritari
s. 8619870

þriðjudagur, september 25, 2012
Tilskipun 1/2012
Eins og sagnfræðingum og öðrum áhugamönnum um þýska alþýðu ætti að vera kunnugt rísa einvaldar oftast upp úr lýðræði. Nægir að nefna bræðurna Ólaf, Davíð og Ögmund í því sambandi, sem allir urðu/eru einræðisherrar á sínum vettvangi.
Nú er svo komið að Formaður stjórnar (með stórum staf) hefur ákveðið að taka sér einræðisvald í hendur og gefa út fyrstu tilskipun klúbbsins.
Tilskipunin er svo hljóðandi
"Vegna gróðurhúsaáhrifa hefur verið ákveðið að héðan í frá SKULI lögbundinn stuttbuxnatími ná frá 1. apríl fram til 1. nóvember ár hvert"
Þeir sem hafi athugasemdir við tilskipun þessa eru vinsamlegast beðnir um að næta á æfingasvæði skotfélags Hafnarfjarðar með undirritað vottorð í leikfimi. Þar verður mótmælendum raðað í stafrófsröð og fá 13 sekúndur til að láta ljós sitt skína áður en hleypt verður af.
Annars var falleg mæting í dag. Dagur, Huld, Fjölnir, Björgvin, Formaður og síðan kom Sigrún á móti umferð.
Formaðurinn.

mánudagur, september 24, 2012
Mánudagur 24. sept - Lenging
Þokkaleg mæting í dag; Dagur, Gudni, Þórdís, Sigrún, Úle, Bjöggi og Oddgeir. Flugvallarhringur (rangsælis). Er kom að gatnamótum Hringbrautar og Hofsvallagötu var Úle spurður hvort hann æfði enn að lágmarki 10k í einu. Hann kvað svo vera. Var því ákveðið að lengja í svo fullnægja mætti þörfum hann. Var því farið um Álagranda og Frostaskjól í þeim tilgangi, utan tveggja sem fóru um Hofsvallagötu. Alls 10k hjá meirihluta hópsins, en ca. 8.5k hjá minnihlutanum.
miðvikudagur, september 19, 2012
Miðvikudagur 19. september - Ferð án fyrirheits
Frábært veður og þokkaleg mæting; Guðni, Sæli, Þórdís, Villi, Óli og Oddgeir. Ferð án fyrirheits þar sem hlaupið var í gegnum Öskjuhlíðarskóg, gegnum Fox-kirkjugarð, yfir brú og að Skógrækt. Þaðan var beygt til vinstri, upp með Borgarspítala, yfir í Háaleitið, í gegnum Fram-hverfið eins og það leggur sig og ekki áð fyrr en komið var að umferðaljósum í Valshverfi við Klambratún. Þaðan var síðan straujað að upphafspuntki. Alls ca. 7.5 km.
Ívar sást síðan spretta úr Öskjuhlíðarskógi er ofangreindur hópur var að ljúka sér af. Ekki er að öðru leyti vitað hvaðan hann kom.
Ívar sást síðan spretta úr Öskjuhlíðarskógi er ofangreindur hópur var að ljúka sér af. Ekki er að öðru leyti vitað hvaðan hann kom.
þriðjudagur, september 18, 2012
Þriðjudagur 18. september - Áttu áttu?
Ef þú átt áttu þá máttu.
Mættir: Guðni, Dagur, Jói, Þórdís, Fjölnir, Huld og Sigrún. Bjöggi le Beuf var á guðs vegum.
Úrvalsæfing er síamskettirnir komu með maraþonprógramm sitt færandi hendi, við mikinn fögnuð viðstaddra. Teknir voru 6 800m sprettir frá bakaríi að kirkjugarði, enda liggur leiðin beint þangað eftir svona æfingu. Kettirnir bættu svo við 4 sprettum inn í Fossvog til þess að fullvinna æfinguna.
Hörkuæfing og vel tekið á því.
P.S. Yasso skilar kveðju og segir að þetta sé allt að koma.
Kveðja,
Sigrún

fimmtudagur, september 13, 2012
Þjálfun og keppni í maraþoni á OL 2012 - Æfingar, þjálfun og annar undirbúningur
Þjálfun og keppni í maraþoni á OL 2012 - Æfingar, þjálfun og annar undirbúningur
Fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class um hlaup og hlaupaþjálfun verður fram haldið veturinn 2012- 2013. Fyrsti fundur vetrarins er helgaður æfingum og öðrum undirbúningi fyrir maraþonhlaup og einkum tekið mið af undirbúningi og keppni Kára Steins Karlssonar á Ólympiuleikunum í London nú í sumar svo og muninum á undirbúningum fyrir Ólympíuleikana og Berlínarmaraþon 2011. En í Berlínarmaraþoninu 2011 bætti Kári Steinn 26 ára gamalt Íslandsmet í maraþoni. Kári Steinn á nú Íslandsmet í maraþonhlaupi, hálfu maraþoni, 10 km. og 5 km. hlaupi.
Fyrirlesarar eru CARGO KINGS, Gunnar Páll Jóakimsson, íþróttafræðingur og Kári Steinn Karlsson. Fundurinn er 17. september kl. 20:00 í veitingasal Lauga í World Class Laugum og er aðgangur ókeypis.
Fjallað verður m.a. um eftirfarandi atriði, sér í lagi með hliðsjón af undirbúningi Kára Steins fyrir OL 2012:
Dæmigerð þjálfunaráætlun fyrir maraþonhlaup
Æfingaálag, tíðni og tegundir æfinga, km. á viku o.fl.
Helstu praktísku þættir sem snúa að undirbúningi fyrir keppni
Hlaupastrategía og markmiðasetning fyrir hlaupið
Mismunurinn á undirbúningi fyrir OL og Berlínarhlaupið 2011
Jafnframt fjallar Kári Steinn um þátttöku sína á ÓL sl. sumar og undirbúningstímabilið og svarar fyrirspurnum frá fundargestum.
Aðgangur er ókeypis.

þriðjudagur, september 11, 2012
Þriðjudagur 11. september - 12321
Fjórir bígsperrtir og vel girtir karlkyns meðlimir mættu í hádeginu í dag í norðan gjólu. Ákveðið að fara hefðbundinn hring um Hofsvallagötu en með smá tvisti þó. Er hópurinn nálgaðist hringtorgið við Hringbraut og Suðurgötu hváði einn meðlimanna þurfa að fara um Suðurgötu þar er bjór og grill höfðu leikið hann illa í sumar. Hinir þrír héldu sínu striki og er komið var á Ægisíðu hófst hið sívinsæla 12321 tempóhlaup, þ.e.a.s. hlaupið á tempóhraða í 1 mínútu, hvílt í eina, tempó í tvær mínútur, hvílt í eina o.s.frv. Tókst þetta með miklum ágætum, enda ágætis meðvindur á þessum hluta æfingarinnar. Fór svo að lokum að þremenningunum tókst (svo gott sem) að ná Suðurgötumanninum áður en komið var að endastöð.
Virðingarfyllst,
Ritarinn
Virðingarfyllst,
Ritarinn
fimmtudagur, september 06, 2012
Fimmtudagur 6. september - Þjófstartað
Í dag var ákveðið að þjófstarta að beiðni eins félagsmanns og leggja af stað kl. 1155 í stað 1208. Skilaboð þar að lútandi virðast hafa borist sumum en öðrum ekki. Lagt var af stað rangsælis umhverfis flugvöllinn. Við Suðurgötu beygðu Dagur, Guðni og Oddgeir af en Þórdís og Sæli héldu keik áfram, sögðust ætla að fara um Hofsvallagötu. Á Suðurgötu hófu þeir er beygðu af tempóhlaup og var hlaupið á þéttu tempói næstu 4 km (hraði á bilinu 4:05 - 4:20 min/km). Talið er að Þórdís og Sæli hafi haldið jöfnu tempói alla æfinguna. Þegar verið var að toga og teygja að hlaupi loknu komu á þéttu brokki, með stuttu millibili, Jóhann Þ. Jóhannsson, meðlimur sem lítið hefur mætt hingað til en hyggst bæta úr því, og Bjöggi bjútí. Ástæða þess að þeir voru ekki í samfloti með hópnum var sú þeir höfðu ekki vitneskju um að það yrði þjófstartað.
miðvikudagur, september 05, 2012
Miðvikudagur 5. september - Menn, mýs og minnisleysi
Í dag mættu tveir menn til hlaupa í ekki svo spennandi veðri. Mýsnar héldu sig hins vegar innandyra. Einn meðlima klúbbsins þjáðist af minnisleysi og gleymdi hlaupagræjunum sínum. Mennirnir tveir er mættu fóru rúnt í skógræktina og enduðu svo æfinguna á því að renna sér niður nýuppgötvaðan arm kolkrabbans. Alls 7 km.
föstudagur, ágúst 31, 2012
Föstudagur 31. ágúst - En to tre
Þrír mættu svo vitað sé. Það sást til Alsæls og Önnu Dísar leggja af stað eitthvað á undan áætlun, sem þýddi að ritarinn hljóp einsamall hring umhverfis flugvöllinn (réttsælis í þetta skiptið) með smá útúrsnúningi í Öskjuhlíðarskógi og síðan styttingu um Suðurgötu, alls 8,5k. Ekki er vitað hvað Alsæll og Anna Dís lögðu af mörkum.
þriðjudagur, ágúst 28, 2012
Þriðjudagur 28. ágúst - Eyjólfur er eitthvað að hressast
Besta mæting í nokkuð langan tíma, alls 6 manns, svo vitað sé: Íben, Happy River, Guð-ni, Dísa kennd við Þór, Ritari og Gunnur sem heltist óvænt úr lestinni eftir stutt hlaup. Flugvallarhringurinn hlaupinn á þægilegur tempói. Eitthvað virðist sumarið því miður vera farið að styttast í annan endann.
Ritarinn
Ritarinn
mánudagur, ágúst 27, 2012
Mánudagur 27. ágúst - Bráðin elt
ÓB lykillinn og ritarinn lögðu af stað í hefðbundinn Flugvallarhring. Íben sást hins vegar á leið til búningsherbergja er þeir félagar lögðu af stað (hann var sem sagt seinn fyrir). Er kom að Hofsvallagötu lýsti ÓB lykillinn því yfir að hann æfði ekki orðið fyrir minna en 10k. Því var ákveðið að lengja aðeins í svo æfingin uppfyllti alla staðla og lágmarkskröfur.
ÓB er tíðrætt um bókina "Born to run" og vitnar gjarnan í hana meðan á hlaupum stendur. Nú vitnaði hann í þróun mannsins og af hverju homo sapiens, þessi óæðri dýrategund, varð ofan á í þróunarsögunni í stað neanderthalmannsins. Ástæðan var í raun einföld. Homo sapiens kunni að hlaupa!! Hann hafði kannski ekki hraðann en hann hafði úthald og útsjónasemi til að eltast við bráðina svo dögum skipti, nokkuð sem neanderthalmanninn kann að hafa skort. Og það er einmitt það sem þeir félagar gerðu er þeir beygðu inn á Ægisíðuna. Þar sáu þeir nefnilega álitlega bráð, Íben, á hlaupum ca. 300m á undan þeim (hann hafði greinilega farði um Hofsvallagötu). Þeir juku hraðann og náðu bráðinni við Dælustöð og varð henni, þ.e.a.s. bráðinni, all bylt við er þeir stukku á hana. Eftir það var bráðinni fylgt að höfuðstöðvunum.
ÓB og Ritari ca. 10k og bráðin rúmlega 8k.

fimmtudagur, ágúst 23, 2012
Þátttaka félagsmanna í RM laugardaginn 18. ágúst
Nokkur fjöldi félagsmanna tók þátt í RM um síðustu helgi. Aðstæður voru eins og best verður á kosið, þægilegt hitastig, lítill vindur o.s.frv. Félagsmenn stóðu sig með prýði, eins og við var að búast. Nöfn og tímar félagsmanna sem vitað er að hafi tekið þátt koma hér að neðan. Tímar innan sviga eru flögutímar (millitímar og endatími í 1/2 og heilu maraþoni og endatími í 10 km).
Maraþon
10 k
Oddgeir 38:56 (38:52)
Ása (keppti f.h. Sigurgeirs) 43:23 (43:18)
Guðni 44:43 (44:35)
Jóhann Þorkell Jóhannsson 48:14 (47:57)
Jóhann Þorkell Jóhannsson 48:14 (47:57)
Ársæll 49:24 (49:04)
Pétur Guðmundsson 51:25 (50:37)
Bryndís Magnúsdóttir 53:43 (53:30)
Björn Kjartan Sigurþórsson 53:54 (53:10)
Pétur Guðmundsson 51:25 (50:37)
Bryndís Magnúsdóttir 53:43 (53:30)
Björn Kjartan Sigurþórsson 53:54 (53:10)
Ívar 54:38 (53:35) (hljóp með dóttur sinni)
Sveinbjörn Valgeir Egilsson 54:57 (53:32)
Bertel Ólafsson 58:10 (56:33)
Gunnur 59:43 (58:16)
Guðmunda Magnúsdóttir 61:12 (59:43)
Hilmar Baldursson 61:31 (59:27)
Laufey Þóra Ólafsdóttir 62:23 (62:18)
Inga Lára Gylfadóttir 62:33 (60:30)
Hekla Aðalsteinsdóttir 65:05 (63:43)
Sigrun Kolsöe 67:06 (64:51)
Alda Ægisdóttir 67:28 (65:43)
Inga Rut Karlsdóttir 68:13 (66:17)

1/2 maraþon
Arndís Ýr 1:24:33 (39:13/1:24:30)
Viktor 1:29:27 (43:30/1:29:18)
Huld 1:35:53 (45:04/1:35:42)
Fjölnir 1:47:00 (51:32/1:46:16)
Sigrún Birna 1:47:22 (48:41/1:47:08)
Björg Alexandersdóttir 1:49:34 (50:42/1:48:51)
Björg Alexandersdóttir 1:49:34 (50:42/1:48:51)
Ásta Hallgrímsdóttir 1:50:20 (49:48/1:49:44)
Anna Dís 1:53:15 (54:06/1:52:22)
Steinunn Una 1:56:02 (55:40/1:55:02)
Gísla Rún Kristjánsdóttir 1:59:38 (56:36/1:59:17)
Gísla Rún Kristjánsdóttir 1:59:38 (56:36/1:59:17)
Svanhildur Ásta 2:07:51 (58:42/2:06:46)
Birna Bragadóttir 2:35:41 (1:10:04/2:34:10)
Birna Bragadóttir 2:35:41 (1:10:04/2:34:10)
Maraþon
Dagur 3:40:44 (51:59/1:42:22/1:47:51/2:08:30/2:34:42/3:13:41/3:40:23)
Fimmtudagur 23. ágúst - Hvað er eiginlega að gerast?
Nú er Bleik brugðið og nú er Snorrabúð er stekkur! Mæting í dag arfaslök, líkt og síðustu misseri. Ritari klúbbsins var sá eini er sá sér fært að mæta í dag (svo vitað sé). Töluvert rigndi kl. 1208 og ákvað því ritarinn að taka stíga Öskjuhlíðar til nánari athugunar, í von um smá skjól. Sú athugun leiddi reyndar til merkrar uppgötvunar - 5. armur Kolkrabbans er fundinn!!! Vonandi verður þess ekki lengi að bíða að félagsmenn flykkist á æfingu og óski eftir almennilegri Kolkrabbaæfingu, þar sem nýji armurinn verður kynntur til sögunnar.
Virðingarfylltst,
Ritari
Virðingarfylltst,
Ritari
mánudagur, ágúst 20, 2012
Mánudagur 20. ágúst - Eftirköst RM hlaups
Fámennt í dag líkt og búið er að vera seinna hluta sumars.
Alsæll og Anna Dís hlupu flugvallarhringinn via Hofsvallgötu en ÓB-lykillinn lengdi aðeins í. Oddgeir hljóp hins vegar á móti þeim og hitti þau Ægissíðu. Alsæll var alsæll með Dísu svo að Oddgeir ákvað að hlaupa aðeins lengra uns hann myndi rekast á ÓB-lykilinn, sem hann og gerði. Þar sneri Oddgeir við og fylgdi ÓB-lyklinum að HLL.
Ritari FI-Skokk

fimmtudagur, júlí 26, 2012
Tempo Thursday the 26th
Mættir: Siggi Óli, gamle Ole, JB Le Canadien, Huld og SBN. Fyrir hlaup voru meðlimir myndaðir í bak og fyrir af ljósmyndara frá ASICS og e.t.v. landar eitthvert okkar risasamningi við fyrirtækið á næstunni. Þeirra helsti markhópur er einmitt smáfeitir amatörskokkarar going 50, or gone...
Jæja, en allavega þá fórum við tempókafla frá HR að Víkinni í Fox (4k)og voru menn ýmist á 10k eða hmp, eftir vild. Í dalnum hittum við svo júfórískan hlaupara sem fór mikinn í 400m sprettum, en hann hefur nú formlega klofið sig frá elítunni með þessum voveiflega hætti. Þetta ku vera ritari hópsins, aka le Odd.
Kveðja góð,
SBN
miðvikudagur, júlí 25, 2012
Miðvikudagur 25. júlí - Blotnar maður minna með því að hlaupa í rigningu í stað þess að ganga?
Það er greinilegt að æfing gærdagsins sat í fólki, a.m.k. ef marka má mætingu dagsins. Aðeins mættu á tíma (svo vitað sé) Síamskettirnir tveir og Oddgeir.
Ákveðið var að fara hefðbundinn flugvallarhring. Strax var ljóst að nokkur þreyta var í mannskapnum og er komið var að Þjóðminjasafninu beygðu Síamskettirnir skyndilega af leið og hurfu niður Suðurgötu - skildu sem sagt Oddgeir eftir á Hringbrautinni. Oddgeir ákvaða að hlaupa um Hofsvallagötu og ákvað jafnframt að bæta aðeins í í þeirri veiku von að geta náð Síamsköttunum áður en komið yrði að HLL. Þegar hann nálgaðist Dælustöð sá hann tvær þústir í fjarska, nálgaðist þær óðfluga, og náði þeim loks. Þústirnar reyndust vera Síams á göngu eftir Ægissíðunni. Að lokum fengust þær af stað. Nálægt Kafara birtist svo skyndilega gamle Ole úr leyni á öfugum hring, með írskt söngvatn í kverkum. Hann sneri við á punktinum og hljóp með Síams og Oddgeiri til baka að HLL. 7-9 km hjá Síams og Oddgeiri og rúmlega 3 km hjá Ole.
Nokkuð ringdi síðastu tvo kílómetrana og var tíminn notaður til að fara yfir niðurstöðu nýjustu rannsóknar á því hvort maður blotni minna með því að hlaupa á milli staða í rigningu í stað þess að ganga. Niðurstaða nýjustu rannsóknarinnar (ólíkt fyrri rannsókn) er sem sagt sú að það skiptir máli hvort þú hleypur eða gengur - Almenna reglan er sú að þú blotnar minna ef þú hleypur.
Gjört 25. júlí, Anno 2012
Ritari FI Skokk

þriðjudagur, júlí 24, 2012
Miðvikudagur 24. júlí - Le spretts
Fín mæting í le spretts í dag (alls 8 manns og konur): Guð-ni, Síams, JayBe, Oddgeir, Sveinki, Gunnur. Gestahlaupari dagsins var enginn annar en Siggi Óli.
Dagsskipunin var sprettir sem 1/2 Síams (Huld) sá um að útfæra. Byrjað á 4 x 300 m sprettum með 100 m skokki á milli. Síðan var farið í 3 x 1200 m spretti og svo endað í því sem byrjað var á; 4 x 300 m sprettum með 100 m skokki á milli. Sem sagt hörkuæfing og almenn ánægja.
Ritari FI skokk

mánudagur, júlí 23, 2012
Þriðjudagur 23. júlí - Sumarfrí ráða ríkjum
Mætt í dag voru Síams, JB, O og Sveinki.
Svo virðist sem, ef marka má mætinguna í dag og síðustu daga, að allflestir meðlimir klúbbsins sem eru vanir að láta sjá sig í hádeginu séu í sumarfríi. Reyndar eru 4 af þeim 5 er mættu í dag einnig í sumarfríi, en þau létu það hins vegar ekki koma í veg fyrir mætingu.
Nokkuð var kvartað undan þreytu og var því farinn rólegur hringur um Hofsvallagötu. Að vísu stytti Sveinki sér leið með því að beygja inn í Björnsbakarí á Hringbraut og panta sér sérbakað. O lengdi síðan aðeins í og fór um Kaplaskjól. Eins gott að menn taki lýsi í fyrramálið þar sem von er á sprettum.

föstudagur, júlí 20, 2012
Föstudagurinn 20. júlí - Bæjarrúntur um bakgarða borgarinnar
Mætt voru: Síams, O, Arndís Ýr og Jón Grillari. Þjófstartið að þessu sinni sáu þær María og Bryndís um (fóru að sögn flugvallarhring um Suðurgötu). Hin fimm lögðu af stað í bæinn þar sem komið var víða við, þó víða væri leitað, en þó sérstaklega í bakgörðum hinna ýmsu húsa í mið- og vesturbæ borgarinnar. Alls 8 km. Reyndar var aðeins kvartað yfir háum hraða í þessum bæjarrúnti. Ég læt ykkur lesendur góðir um það að giska á hvert hinna fimm fræknu féll helst grunur á.
Ritari
Ritari
fimmtudagur, júlí 19, 2012
Fimmtudagurinn 19. júlí - Tempúr
Mætt í hádeginu voru JayZ (alias JB), Síamsfræin og O(bama). Ekki virtist mikill áhugi hjá fyrir tempúræfingu dagsins, a.m.k. ekki til að byrja með. Þar sem mannskapurinn stóð ráðvilltur á horni Hringbrautar og Hofsvallagötu og réð ráðum sínum, birtust þeim þrír íðilfagrir meðlimir klúbbsins á leið austur Hringbraut. Þetta voru þær Þórdís, Gunnur og Katrín Spa. Hvað voru þær eiginlega að gera þarna? Jú, þær voru "bara að taka 10 km" eins og þær orðuðu það (svona nokkurn veginn). Eftir að hafa skipst á kveðjum í smá stund skeiðuðu þær áleiðis að hótelinu en tempúr-liðið hélt af stað. Skildi þéttu tempó haldið að dælustöð og var það og gert (alls 3 km). Eftir það var niðurskokk. JayZ og O(bama) tók síðan smá aukarúnt til að ná 10 km (Síamsfræin voru þegar búin að ná því).
Ritari
Ritari
miðvikudagur, júlí 18, 2012
Miðvikudagsæfing 18. júlí - Meyjar í miðbæ
Einungis kvenkyns félagsmenn sáu sér fært að mæta á æfingu dagsins. Anna Dís, Steinunn Una, Þórdís og Huld notuðu tækifærið og spókuðu sig í miðbænum við fádæma athygli vegfarenda. Fór svo að umferð stöðvaðist og öll starfsemi lamaðist á meðan þær þeystust um miðbæinn í litríkum fatnaði. Nokkrir aðdáendur reyndu að ná sambandi við meyjarnar sem gáfu ekki færi á sér. Óþekkti skrifstofumaðurinn naut þó athygli þeirra um stund. Eitthvað um 7,5 km.
Kveðja, HUK
Kveðja, HUK
þriðjudagur, júlí 17, 2012
Þriðjudagsþunder 17.júlí
Mættir:Ívar, Johnny, Guðni(í Sunnu), Huld, Jens og Sigrún. Hituðum upp að Hofsvallagötu og fórum þá 3*1000m og 4*400m. Smá niðurskokk í restna. Fín æfing í boði Huldumeyjar.
Kveðja að handan -(þetta var svo erfitt að ég er framliðin)
SBN
mánudagur, júlí 16, 2012
Mánudagsæfing 16. júlí
Mættir:Jens, Guðni, Huld, Gunnur og Sigrún.
Fórum rólegan rúnt í bæinn og niður á höfn, hvar GI var með skyggnilýsingar. Fórum síðan upp Skólavörðustíg og á hótelið.
Heavy stöff á morgun..
Kv. SBN
föstudagur, júlí 13, 2012
Föstudagurinn 13. júlí - Bæjarrúntur
Mætt voru: JB, Tag Hauer, Gun, hálfur Siams, O, Guð-ni og Jón Haförn.
Hefðbundinn bæjarrúntur sem liggur um Valsheimili, Klambratún, Nóatún, Borgartún, Skúlagötu, Austurstræti og -völlur, Tjörnin (ekki áhugi á einum Jónasi að þessu sinni), BSÍ (þar sem aðalrétturinn á veitingastofunni er sagður Kjammi og Kók), Valsheimili og þaðan til HLL.

fimmtudagur, júlí 12, 2012
Fimmtudagurinn 12. júlí - Kolbrabbinn er mættur aftur
Í kjölfar þess að Gunnur hafði óskað sérstaklega eftir brekkusprettum í dag var ákveðið að rifja upp Kolkrabbann. En hvað gerðist? Þegar félagsmenn mættu á ráspól um hádegisbil voru Gunnur og Hekla alsælar að ljúka sinni æfingu (engar brekkur). Þær ákváðu sem sagt að "taka bara löns áðetta" einhvern tíma seinna.
Þeir sem mættu kl. 1208 voru JB, Anna Dís, Þórdís, Dagur, Guðni (hlaupastíll hans tekinn fyrir á æfingunni í gær), Síams og O. Eftir 2 km upphitun var lagst til atlögu við Kolkrabbann, alls 4 mislangir/sterkir armar. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að 3 af 8 félagsmönnum voru að þreyta þessa raun í fyrsta skipti. Niðurskokk í framhaldi af Kolbrabbanum. Alls rúmir 8 km.

miðvikudagur, júlí 11, 2012
Miðvikudagurinn 11. júlí - Ný andlit
Mætt voru Síams, Dagur, Glassúr, O ásamt nýju andlitunum þ.e.a.s. Steinunni Unu hjá tækniþjónustunni í KEF ásamt dóttur sinni. Hofsavallagötuhringur þar sem farið var yfir hlaupastíl félagsmanna og vakti það athæfi allmikla kátínu. Alls 8 km. Er komið var að HLL voru þar að teygja og tvista; Arndís Ýr og Þórdís (ekki Ýr). Þær fóru s.s. Cher.
Ritari
Ritari
Hádegisæfing 10. júlí
Mættir á gæðaæfingu: JB, GI, DE, HK og SN. Æfingin var í boði Huldar og hljóðaði (ekki hátt) upp á 4*400m @ 5k pace, 2000 m @ 10k pace og 4*400m @ 5k pace. Smá upphitun og niðurskokk. Vonandi fer ég rétt með en ef ekki þá verður bara einhver að leiðrétta mig.
Alls 9,6
SBN
mánudagur, júlí 09, 2012
Hádegisæfing 9. júlí
Mættir: Guðni, Jens (frá Kanada), Gunnur, Anna Dís, Dagur, Katrín og Sigurgeir
Gunnur og Katrín fóru Suðurgötu á meðan rest fór rólega Hofs. Það gekk samt eitthvað illa til að byrja með að fá Jens til að halda rólegu tempó, greinilegt að rólegt í Kanada er eitthvað hraðar en á Íslandi. Það var gaman að fá Jens í heimsókn og vonandi hefur hann tíma til að heiðra okkur með nærveru sinni oftar í sumarfríinu sínu.
Það fréttist af nokkrum félagsmönnum fyrir norðan í síðustu viku að keppa í Akureyrarhlaupinu:
10 KM
30:18 Kári Steinn Karlsson
36:55 Arndís Ýr Hafþórsdóttir
40:30 Dagur Egonsson
Kveðja,
Sigurgeir

föstudagur, júlí 06, 2012
Hádegisæfing 6. júlí
Þar sem enginn var mættur utan Síams var ekkert annað í stöðunni en að hlaupa (af sér spekið) í miðbæinn og máta gallabuxur og kaupa þær skömmu síðar.
Þessi æfing var í boði tískurisans Lee.
Alls 7
P.s. Bryndís var reyndar mætt en var buxnalaus og við gátum ekki leyft það á æfingu svo við sendum hana heim.
Hádegisæfing 5. júlí
Mættir: Þórdís, Oddgear, Huld og Sigrún. Fórum 3*5 mïn. tempókafla með léttu upp og niðurskokki, eða þannig.
Fín æfing,
SBN
þriðjudagur, júlí 03, 2012
Þriðjudagur 3. júlí - Gæðaæfing dagsins á réttu "peisi"
Mætt á gæðaæfingu dagsins voru: Sigrún, Guðni, Dagur og Oddgeir. Hefðbundinn Hofsvallagötuhringur (sem er rangsælis) með 6x800m sprettum er hófust við Björnsbakarí á Hringbraut og lauk skömmu fyrir komu að HLL. Áhugaverðar umræður um forsetakosningarnar voru að komast í gang er sprettirnir hófust. Eftir það var hvorki minnst á Óla né Þóru þar sem öll umframorka sumra fór í að reikna ætlað "peis" sprettanna miðað við sub40 markmið Guðna. Alls hlaupnir ca. 9 km.
Ritari
Ritari
mánudagur, júlí 02, 2012
Mánudagurinn 2. júlí - Pinnstífar nafngiftir
Vitað er að eftirfarandi mættu í dag: Dagur, Ársæll, Sveinkbjörn, Huld, Sigrún og Oddgeir.
Á æfingunni barst það m.a. í tal hversu pinnstífur Dagur er enn á vissum stöðum eftir Esjugöngu um þarsíðustu helgi.
Að auki var farið yfir nafngiftir þeirra félagsmanna er mættu til leiks: Dagur - Þýðir bara dagur, segir Dagur. Ársæll - Árrisull og sæll. Sveinkbjörn - Stytti sér leið og gat því ekki tjáð sig um nafngift sína. Huld - Á huldu. Sigrún - Útleggst sem Victoria á ensku. Oddgeir - Oddhvasst spjót að sögn Sigrúnar.
Ðats ol.

föstudagur, júní 29, 2012
Föstudagurinn 29. júní - Tvist og bast
Mætt á réttum tíma voru Arndís Ýr og Oddgeir. Huld, Ársæll og Sigurgeir þjófstörtuðu hins vegar "rójalí" og lögðu af stað áður en klukkan varð 1208. A og O fóru Hofsvallagötuhringinn á góðu róli. Ritara skilst að HÁS hópurinn hafi farið svipaða leið nema hvað Sigurgeir lengdi (um Meistaravelli) og bætti (4:30 min/km) í, enda maðurinn búinn að lýsa því yfir að hann ætli að verða sub40 maður á þessu ári. Reyndar virðist þessi aukna vegalengd og aukni hraði hafa tekið sinn toll af orkuforða Sigurgeirs því það sást til hans strax að hlaupi loknu vera að panta sér stóran bát mánaðarins á Subway.
Ritari skokkklúbbsins.
Ritari skokkklúbbsins.
fimmtudagur, júní 28, 2012
Fimmtudagurinn 28. júní - Létt tempóhlaup
Mætt: Ársæll (hættur á kexkúr), Guðni sub40, Sigrún, Oddgeir og María (sér). Einnig sást til Þórdísar á hlaupum við rætur Öskjuhlíðar undir lok hefðbundins æfingatíma. Veður einstaklega gott. Tekin voru 2x5 mín tempóhlaup (byrjað á Hofsvallagötu og endað ca. við dælustöð). Ársæll var mjög sprækur og því ekki nema von að maður spyrji sig af hverju hann hafi ákveðið að hætta á kexkúrnum? Hann einn getur svarað því.
Virðingarfyllst,
ritarinn
Virðingarfyllst,
ritarinn
Hádegisæfing 27. júní
Mættir: Síams 1&2, Guðni, Dagur, Oddgeir og Sigurgeir.
Fórum smá rúnt um miðbæinn, Háskólagarðana og Nauthól heim að HRN. Það hefur verið ákveðið að byrja aftur á sprettum og tempó - sprettir á þriðjudögum og tempó á fimmtudögum - fyrir þá sem hafa áhuga.
Það vekur athygli að aðstoðaritarinn er upptekinn við samningaviðræður Símas og Cargo Kings og hefur þ.a.l. ekki gefið sér tíma til að blogga um æfingarnar, vonandi klárast þessar samningaviðræður fljótlega!
Kv. Sigurgeir

þriðjudagur, júní 26, 2012
Þriðjudagurinn 26. júní - Sprettirnir eru komnir
Mætt í hörku-5x800m-spretti á Hofsvallagötu og Ægissíðu voru: Guðni, Huld, Sigrún, Ársæll (á nýjum kex-kúr), Sveinbjörn og Oddgeir. Samkvæmt Síams er þetta það sem koma skal (fyrir þá sem vilja). Sér voru María og Aðalheiður.
mánudagur, júní 18, 2012
Esperantó - nýtt mál - nýjir tímar
Til þess að forðast allan misskilning á hádegisæfingunum verður hér eftir aðeins talað esperantó. Vinsamlega kynnið ykkur frasana hér að neðan og mætið undirbúin á morgun.
Kveðja,
Dagur
Lunĉo Trejnado 18a junio
Bona oficojn ĉe lunchtime. Estis kvar membroj þjófstarta (ne la unuan fojon okazas). Oni diras ke havi Ársæll, María Rún, Þórdís kaj anonima novulo estis en movado. La tempo havis dato, Guðni, Siam (ambaŭ), Gunnar, Sveinkbjörn kaj O-viro. Ideale, la diskuto pri kio konsistigas bono kaj malbono lingvo. Inkludante Estis krufið se venonta ĵaŭdo esti konsiderata post 3 tagoj aŭ 10 tagoj, cxu gxi estas preferinde paroli pri la oka jardeko kiel la periodo inter 1970 kaj 1980 aŭ 1980 kaj 1990. Neniu rezulto akirita en ĉi gaso turdoj sed la nova lingvo konsultisto grupo, tago, proponis por porti ĝin al la koordinato discrepancia klare ekzistas inter la diversaj lingvoj tiurilate (ekz. islanda, dana kaj angla). Estos interese observi progreson ekde tago oni bone konata lingvo.
Vi ĉiam,
Dagur
Vi ĉiam,
Dagur
Mánudagsæfing, 18. júní
Ágætis mæting í hádeginu. Það sást til fjögurra félagsmanna þjófstarta (ekki í fyrsta skipti sem það gerist). Sagt er að þar hafi Ársæll, María Rún, Þórdís og ónefndur nýliði verið á ferð. Á réttum tíma fóru hins vegar Dagur, Guðni, Síams (báðar), Úle, Gunnur, Sveinkbjörn og O-man. Helst var rætt um það hvað teljist rétt og rangt málfar. M.a. var krufið hvort næsti fimmtudagur teljist vera eftir 3 daga eða 10 daga og hvort sé eðlilegra að tala um 8. áratuginn sem tímabilið milli 1970 og 1980 eða 1980 og 1990. Engin niðurstaða fékkst í þetta argaþras önnur en sú að nýr málfarsráðunautur hópsins, Dagur, bauðst til að taka það að sér að samræma misræmið sem augljóslega ríkir milli ýmissa tungumála í þessum efnum (t.d. íslensku, dönsku og ensku). Verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála enda Dagur rómaður tungumálamaður.
miðvikudagur, júní 13, 2012
Magnaður miðvikudagur
Góð æfing í blíðskaparveðri.
Hofs með lengingu útá Kappla fyrir stóðhestana, tempó ríflega 3k niður á 4:03
Mættir : Sigurgeir, Fjölnir, Guðni, Óli, Huld, Dagur og Geraldine Cros (sjá mynd) starfsmaður Jens Bjarna í Montreal.
Hofs með lengingu útá Kappla fyrir stóðhestana, tempó ríflega 3k niður á 4:03
Punktar frá æfingu:
- N1 mun verða með einkaleyfi á dreifingu bók Cargo Kings um næstu jól
- með hverju keyptu eintaki fæst 12 tommu bátur á Subway
- Jón Gunnar Geirdal ætlar að fara að mæta (höfum heyrt þetta áður)
- Cargo Kings skipuleggja næsta Subway hlaup og kynna dagsetninguna fyrirfram
- Subway hlaupið mun að þessu sinni verða alþjóðlegt
- Sigurgeir er 16,1% feitur og er því ekki tjöbbí
- orðatiltækið 'feitur eins og veðurfréttamaður' hefur verið samþykkt
- ekki var farið í sjósund vegna þess að Sigurgeir og Fjölnir vildu það ekki en ætla að fara næst
- Einar Örn hafði ekkert með það að gera að þyggja boðsferðina til París
- Cargo Kings og Símas hyggja á samruna innan FI Skokk undir nafninu The Kings of Siam, hagsmunagæsluhópur fallega fólksins
- æfing aftur á morgun og hinn og hinn og hinn..
Góðar stundir,
DE
mánudagur, júní 11, 2012
Fréttir af Cargo Kings
Ólyginn sagði að Cargo Kings hyggja á bókaútgáfu. Bókin mun koma út fyrir næstu jól og fjalla um hvernig eigi að hlaupa maraþon á undir 3:30. Titill bókarinnar hefur þegar verið ákveðinn, "Hægri - vinstri" og undirtitillinn "Vinstri - hægri". Forsíðu bókarinnar mun prýða mynd sem tekin var stuttu eftir að komið var í mark í Edinborgarmaraþoninu. Getspakir geta reynt að finna út hvor er hvað á myndinni.
Hádegisæfing 11. júní
Toppmæting í dag: Sveinbjörn, Dagur, Guðni, Oddgeir, Jón Örn, Óli, Sigurgeir, Fjölnir, Huld og Sigrún. Fórum Hofsvallagötu á fínu róli og sumir enduðu í sjóbaði, aka blautbolskeppni eldri borgara. Hinir, sem með fullu viti fara hlupu heim á hótel í teygjur.
Alls um 8,6k
Kveðja,
SBN
föstudagur, júní 08, 2012
Hádegisæfing 8. júní
Mættir: Bryndís, Anna Dís, Þórdís, Katrín (nýliði), Sveinbjörn, Dagur, Óli og Sigurgeir.
Ég held að stelpurnar + Sveinbjörn hafi farið öfuga Hofs á meðan strákarnir fóru rétta Hofs. Hvað er öfug og rétt Hofs???
Kv. Sigurgeir
Ég held að stelpurnar + Sveinbjörn hafi farið öfuga Hofs á meðan strákarnir fóru rétta Hofs. Hvað er öfug og rétt Hofs???
Kv. Sigurgeir
þriðjudagur, júní 05, 2012
Hádegisæfing 5. júní
Mættir: Ársæll og Þórdís sér. Sveinbjörn, Dagur, Oddgeir, Fjölnir og Sigrún fóru skoðunarferð í bæinn og veltu fyrir sér hvenær rétt væri að byrja með "kolkrabbann" eftir maraþon.
Um 8k
SBN
mánudagur, júní 04, 2012
Mánudagsæfing 4. júní
Mætt á le pin:
María Rún, fór sér.
Ársæll og Þórdís 10K.
Huld, Sveinbjörn, Oddgeir og Sigrún sem fóru Hofsvallagötu á rólegum og rómantískum nótum. Veður var með eindæmum gott en vissulega hefð verið gaman að sjá fleiri úr le group.
Kveðja,
SBN
föstudagur, júní 01, 2012
Staðfest úrslit frá Edinborg
Leiðrétt úrslit:
Heilt maraþon
Oddgeir 03:15:56 PB
Sigurgeir 03:21:43 PB
Dagur 03:26:58
Fjölnir 03:29:47 PB
Óli 03:33:57
Ása 03:45:08 PB (fyrsta hlaup)
Ívar 03:46:01
Jón Örn 04:17:32
Hálft maraþon
Huld 01:37:23
Sigrún 01:43:35 PB
Ársæll 01:50:27 besti tími í 10 ár
Kveðja,
fulltrúi ritara
Heilt maraþon
Oddgeir 03:15:56 PB
Sigurgeir 03:21:43 PB
Dagur 03:26:58
Fjölnir 03:29:47 PB
Óli 03:33:57
Ása 03:45:08 PB (fyrsta hlaup)
Ívar 03:46:01
Jón Örn 04:17:32
Hálft maraþon
Huld 01:37:23
Sigrún 01:43:35 PB
Ársæll 01:50:27 besti tími í 10 ár
Kveðja,
fulltrúi ritara
Hádegisæfing fimmtudagur 31. maí
Ársæll fór 10k enda ferskur eftir gott hlaup í Edinborg.
Dagur og Ólafur fóru í stutta sendiferð inná Hverfisgötu tóku síðan strikið inní Nauthólsvík þar sem farið var í sjóinn sem var kaldur en frískandi.
Ætlunin er að endurtaka leikinn föstudag.
DE
Dagur og Ólafur fóru í stutta sendiferð inná Hverfisgötu tóku síðan strikið inní Nauthólsvík þar sem farið var í sjóinn sem var kaldur en frískandi.
Ætlunin er að endurtaka leikinn föstudag.
DE
miðvikudagur, maí 30, 2012
Hádegisæfing 30. maí
Mættir á pinnann: Dagur, Guðni, Sveinbjörn og Bjöggi. Ársæll var á eigin vegum. Fórum rólega Suðurgötu og ræddum aðeins hvíld eftir maraþon. Sumir hvíla 1 dag, aðrir 1 dag fyrir hverja mílu. Einnig ræddum við merkingu orðsins náungakærleikur, en sumir í hópnum virðast ekki skilja hugtakið.
Hér eru nokkrar útgáfur:
http://www.runnersworld.com/community/forums/training/marathon-race-training/3-4-week-rest-after-marathon
SBN
sunnudagur, maí 27, 2012
EDI Marathon 2012 Unofficial timing
Nokkrir vaskir FI skokks sveinar og meyjar þreyttu þetta hlaup, 3 í hálfu og 8 í heilu maraþoni. Veður var með besta móti, sól, hægviðri og um 20 gráður plús, þegar leið á. Óopinberir tímar fara hér á eftir:
Heilt
Oddgeir 3:16
Sigurgeir 3:21
Dagur 3:28
Fjölnir 3:29
Óli 3:34
Ása 3:45
Ívar 3:46
Jón Örn 4:17
Hálft
Huld 1:37
Sigrún 1:43
Ársæll 1:50
Kveðja,
fulltrúi ritara
Ath. Það sem helst var markvert við hlaupið var að 2 úr hálfa maraþoninu voru nýsestir á salerni þegar ræst var og einn í heilu var keyrður í hjólastól um marksvæðið eftir hlaup. Hann mun héreftir keppa í hjólastólarallýi, fötlunarflokkur A2.

miðvikudagur, maí 23, 2012
Hádegisæfing 23. maí
Mættir: Doris Day, Johnny Eagle, Omen, Wicked Stepmothers, Ivanhoe. Ætlunin var að hlaupa í 1,5 tíma skv. EDI og á bakaleið mættum við Fjölni og Gamle Ole en þeir hlupu með okkur til baka. Mér er alveg sama á hvaða tíma þið hlaupið, mér er sama í hvernig skotapilsi þið verðið, mér er jafnvel sama hvort þið gerið PB eða ekki en mér er ekki sama ef þið þekkið ekki þessi lög og getið ekki sungið með þegar ég og Gamle Ole tökum númerið okkar. Ókey?!!
http://m.youtube.com/index?desktop_uri=%2F%3Fgl%3DGB%26hl%3Den-GB&hl=en-GB&gl=GB#/watch?v=z-JmbHfeIhQ
http://m.youtube.com/index?desktop_uri=%2F%3Fgl%3DGB%26hl%3Den-GB&hl=en-GB&gl=GB#/watch?v=X6zFaF9TgzA
Kveðja,
SBN
mánudagur, maí 21, 2012
Hádegisæfing 21. maí
Mættir: María Rún, Ársæll, Óli, Ívar, Dagur og Sigurgeir
Það var róleg Hofs skv. EDI-plani. María og Ársæll fóru Suðurgötu.
Kv. Sigurgeir
Það var róleg Hofs skv. EDI-plani. María og Ársæll fóru Suðurgötu.
Kv. Sigurgeir
föstudagur, maí 18, 2012
Föstudagsæfing 18. maí
Toppmæting í dag: Sveppi, Anna Dís, Cutress, Óli alsgáði, Fjölnir, Bjútí, Riverhappy, Eagle, Dagur, Sigrún. Fórum rólega Hofsvallagötu í fínasta veðri. Einnig sást til Bryndísar sem var á eigin leið. Nú er ekki úr vegi að minna EDI fara að fara að hysja upp um sig sokkana, mylja úr bestu brókinni og byrja að carbólóda, sé ásetningur í þá átt. Svo er bara að sigla þetta létt og brosa í markinu. Maður veit eldrei hver leynist þar bakvið þúfu.
Heyrðist á æfingu í dag:"Hvernig ætli sé að hlaupa óþunnur?". Hvorugt þeirra sem samtalið áttu virtust vita það.
Góða helgi-
SBN
föstudagur, maí 11, 2012
Teygjur er til einskis
Ég vissi það, ég sagði það...
http://www.hamragrill.is/content/article.php?id=307
Kveðja,
Dagur
fimmtudagur, maí 10, 2012
10. maí - Tempó (þó ekki hljómsveitin Tempó)
4 EDI einstaklingar (OFSÓ) voru svo óþolinmóðir á komast á tempóæfinguna að þeir ákváðu að byrja kl 1130 (í stað 1208). Hlaupið um vestur Hringbraut og út á Nes. Þar hófust tempó hlaupin (4 x 7 mín) er lágu um Gróttu, að Eiðistorgi og enduðu á Ægissíðu. Niðurskokk frá Ægissíðu til höfuðstöðvanna. Aðrir EDI einstaklingar ætluðu að framkvæma sambærilega sambærilega æfingu seinna um daginn að lokinni IT ráðstefnu.
Pólitísk ráðning bæjarritara
Framsóknarmaður ráðinn bæjarritari í Kópavogi. Hneyksli og spilling af verstu gerð.
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/75152/
Fyrrverandi bæjarritari hefur sést við æfingar á Kópavogsvelli í hópi fagurlimaðra gæðinga.
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/75152/
Fyrrverandi bæjarritari hefur sést við æfingar á Kópavogsvelli í hópi fagurlimaðra gæðinga.
miðvikudagur, maí 09, 2012
Hádegisæfing 9. maí
Mættir: Guðni, Huld, Sigurgei, Fjölnir og Sigrún. Fórum óhefðbundinn bæjarrúnt með viðkomu við Icelandair kaffihúsið á Lækjartorgi og Icelandair Hotel Marina. Lögð voru á ráðin með skemmtanahald eftir EDI og nefnd er að vinna að vali á veitingastað. Guðni, sem orðinn er árinu eldri, lét sér fátt um finnast og teymdi liðið ákveðnum skrefum um krákustíga miðbæjarins.
Gott veður og sól í sinni,
alls um 8k
kv. SBN
Gott veður og sól í sinni,
alls um 8k
kv. SBN
þriðjudagur, maí 08, 2012
8. maí - Hámark(s árangur)
Þá var komið að hámarki sprettæfinga fyrir Edinborgarfara. Alls skildi hitað upp í 28 mín, hlaupnir 9 x 800m sprettir og svo 28 mín niðurskokk. Fór þetta fram síðdegis.
Lagt af stað frá HLL kl rúmlega 17 (upphitun) á hinn rómaða íþróttaleikvang Mávabæjar, þar sem sprettirnir voru teknir. Síðan hlaupið aftur að HLL (niðurskokk). Tæplega tveggja tíma æfing.
Þetta framkvæmdu: Hulduefnið, Johnnie Be Good, Óli Spóli, Ibsen, Fjölnir í Spice Girls, Geiri glassúr, Oddgeir pulsukóngur og Dag eftir dag.
Fyrr um daginn hafði Sigga Bí tekið sama prógram í nágrenni heimilis síns.
Ekki er vitað hvað fór fram á hádegisæfingunni en þeir sem mættu þá mega gjarnan "kommenta".
Riddarinn

mánudagur, maí 07, 2012
Skokkhópar topp 10 7. maí
Hópar - TOP 10 maí
Hópur 10+ Sum Fél. km
FI SKOKK 831,8 16 52,0
ÍR Skokk 1.304,8 30 43,5
ÍR Hlaup 1.052,5 27 39,0
HAUKAR-Laugavegur 2012 444,9 12 37,1
Afrekshópur / Ármann 1.854,5 53 35,0
Skokkhópur Garðabæjar 690,6 20 34,5
Hlaupasamtök Lýðveldisins 687,6 20 34,4
Laugaskokk 1.649,6 49 33,7
Valur Skokk 768,4 23 33,4
Eyrarskokk 447,1 14 31,9
Hádegisæfing 7. maí
Mættir:
María Rún, fór Öskjuhlíðarhring, Óli, Dagur, Guðni, Huld, Ívar, Sigrún. Þau fóru Hofsvallagötuna á EDI tempói. Búið er að ákveða að það verður Eurovísjón gleðskapur kvöldið fyrir maraþon í EDI en ekki er alveg vitað hvar. það sem er vitað er hinsvegar það að hver kemur með sinn snakkpoka og kók. Einnig sást til Arnanna, Oddgeirs og Mr. Eagle, en þeir voru báðir á sérleiðum. Gamle Ole, fyrrum stóraðdáandi Hannesar Hólmsteins, þurfti mjög skyndilega að stökkva niður í Nauthólsvík og kom tilbaka með fólskulegan sælusvip. Ekki skyldi mann undra ef fréttir af Öskjuhlíðarperranum færu að birtast von bráðar í netmiðlum. Aftur.
Kv. S
laugardagur, maí 05, 2012
Day after run 2012
Fín mæting var í hið hefðbundna eftirhlaup Icelandairhlaups og fara tímar þátttakenda hér á eftir:
Arndís Ýr 26:40
Guðni 29:13
Huld 29:57
Óli Briem 30:17
Sigrún Birna 32:07
Pétur Pan 34:29
Þórdís 35:12
Ársæll 36:27
Anna Dís 36:47
Gunnur 37:05
Hekla 40:30
María Rún 42:06
Arndís Ýr 26:40
Guðni 29:13
Huld 29:57
Óli Briem 30:17
Sigrún Birna 32:07
Pétur Pan 34:29
Þórdís 35:12
Ársæll 36:27
Anna Dís 36:47
Gunnur 37:05
Hekla 40:30
María Rún 42:06
föstudagur, maí 04, 2012
Icelandairhlaupið fimmtudaginn 3. maí
Hið árlega Icelandairhlaup fór fram fimmtudaginn 3. maí. Mjög góð þátttaka var í hlaupinu enda veður með allra besta móti. Alls skiluðu 557 hlauparar sér í mark sem er ekki langt frá metinu sem slegið var árið 2010 (sjá mynd hér að neðan er sýnir fjölda þeirra er hafa skilað sér í mark frá árinu 1995).
Vegalengd hlaupsins var sem fyrr 7 km. Sigurvegari hlaupsins var Kári Steinn Karlsson á tímanum 21:20. Fyrst kvenna var Fríða Rún Þórðardóttir á tímanum 27:33. Nánari úrslit hlaupsins má nálgast á hlaup.is.
Öll framkvæmd hlaupsins gekk eins vel og á verður kosið, ekki síst fyrir sakir að óvenju margir meðlimir skokkklúbbsins, auk annara velunnara, sáu sér fært að mæta til vinnu. Já, það er óhætt að segja að það hafi verið valinn starfsmaður í hverju rúmi. Vilja framkvæmdastjóri hlaupsins, Sigurgeir Már Halldórsson, og stjórn skokkklúbbsins koma á framfæri þökkum til allra þeirra er lögðu hönd á plóg. Vonandi verður næsta Icelandairhlaup enn stærra og glæsilegra!
Hér má svo sjá nokkrar myndir frá hlaupinu.
![]() |
| Mynd - Siggi Anton |
![]() |
| Mynd - Siggi Anton |
![]() |
| Mynd - Siggi Anton |
![]() |
| Mynd - Siggi Anton |
![]() |
| Mynd - Siggi Anton |
![]() |
| Mynd - Siggi Anton |
fimmtudagur, maí 03, 2012
3. maí - Tempóæfing fyrir þá sem vildu
Hluti Edínaborgarfara mættu á hádegisæfinguna: Þeir sem hyggjast hlaupa heilt maraþon tóku tempó (ekki sjampó) æfingu sem fólst í:
- 28 mínútna forhitun (náðist ekki alveg vegna tímaskorts)
- 2 sinnum 15 mínútna tempói með 4 mínútna rólegu skokki á milli
- og svo 28 mínútna kólnun (náðist heldur ekki alveg vegna tímaskorts).
Þetta framkvæmdu þeir FOD auk G (ekki Edínaborgarfari). Að auki vóru mættar Edínaborgar 1/2 maraþon fararnir Síams, auk Gunnar. Þær stúlkur ákvaðu að vera ekkert að æsa sig of mikið og tóku eitthvað rólegri æfingu en strákarnir.
Það spurðist út að Í hefði tekið sína tempóæfingu snemma um morguninn.
Í kvöld fer svo Icelandairhlaupið fram. Veðrið lofar góðu.
Góðar stundir,
ritari skokkklúbbsins.

Town of runners
Vill benda á eftirfarandi atburð
http://www.facebook.com/#!/events/449507811742850/
og síðu myndarinnar þar sem er að finna góða trillu
http://www.townofrunners.com/
Kveðja,
Dagur
http://www.facebook.com/#!/events/449507811742850/
og síðu myndarinnar þar sem er að finna góða trillu
http://www.townofrunners.com/
Kveðja,
Dagur
miðvikudagur, maí 02, 2012
Hádegisæfing 2. maí
Brautarskoðun og létt hlaup með ASCA sögum. Gerandi var SBN en þolendur voru GI og SMH en einnig sást SVE og OLI var á sametime séræfingu.
Alls tæpir 7k
SBN
P.S. Munið að mæta tímanlega í höfuðstöðvarnar á morgun þið sem vinnið við hlaupið. Þar fáið þið vesti og frekari upplýsingar um störfin.
Alls tæpir 7k
SBN
P.S. Munið að mæta tímanlega í höfuðstöðvarnar á morgun þið sem vinnið við hlaupið. Þar fáið þið vesti og frekari upplýsingar um störfin.
þriðjudagur, maí 01, 2012
1. maí - Sprettæfing í Mávabæ
Mættir á sprettæfingu á aðalíþróttaleikvangi Mávabæjar (alias Klobbavogur) vóru eftirtaldir: FÍDOS
Upphitun fyrir æfinguna hófst frá heimili hvers og eins og var miðað við að menn yrðu komnir á ráspól íþróttaleikvangsins kl. 0900. Þar tóku við 8 sinnum 800 metra sprettir og runnu þeir ljúft um fætur manna, svo ljúft að einhverjir rugluðust í talningunni (héldu að þeir ættu fleiri spretti eftir) eða vildu taka bónussprett(i). Niðurskokk fólst svo í því að hver og einn hélt heim á leið.
Fyrrum aðalritari flokksis tók síðan sambærilegt prógram tveim klukkustundum síðar (reyndar ekki í Mávabæ). Ekki er vitað hvað aðrir meðlimir flokksins gerðu á frídegi verkafólks, en þeir sem gerðu eitthvað mega gjarnan skrifa um það í athugasemdakerfinu.
Núverandi ritari flokksins
Óverendát

mánudagur, apríl 30, 2012
ASCA 2012 í Vín
Það var fríður hópur er hélt á vit ævintýranna í Vínarborg helgina 27. – 29. apríl. Lagt var af stað á föstudagsmorgni og var millilent í Frankfurt. Hópurinn komst svo í tvennu lagi þaðan til Vínar og voru allir komnir á hótelið um kvöldmatarleytið.
Hlaupið var á laugardegi og hófst hlaupið hjá konunum klukkan 0940 (heilum 10 austurrískum mínútum á eftir áætlun) og hjá körlunum 45 mínútum síðar. Hlaupinn var hringur í útjaðri þorpsins Fischamend. Hringurinn var alls 4.75 km að lengd og hlupu konurnar einn slíkan en karlarnir tvo, eða 9.50 km.
Hitabylgju hafði verið spáð í Austurríki þessa helgi og gekk það eftir. Þegar keppninn hófst var hitinn kominn vel yfir 25 gráður. Meðlimir skokkklúbbsins létu það hins vegar ekkert á sig fá og gerðu sér lítið fyrir og unnu allt sem hægt var að vinna. Konurnar lentu í fyrsta sæti í liðakeppninni eftir nokkuð tvísýna baráttu við hinar austurísku Mozart dömur. Karlarnir gerðu síðan nokkuð sem engan hafði órað fyrir og unnu sína liðakeppni. Það merkilega við þennan hóp er e.t.v. það hversu jafn hann er, fyrir utan afreksfólkið sem er í sérflokki, og líka það að 6 nýliðar voru í liðinu.
Hlaupaleiðin var skemmtileg, malarstígar um repjuakra og einhverjir sáu stökkvandi dádýr. Hvort sem það var alvöru eða ekki, skiptir ekki máli. Ein skemmtileg setning heyrðist eftir hlaup er einn meðlimur kvennaliðsins spurði Arndísi: „Leistu eitthvað við á leiðinni?“ Arndís, sem svaraði svellköld, „Rak ég eitthvað við á leiðinni“?
Um kvöldið að lokinni skoðunarferð um víðan völl var verðlaunaafhending og dansiball og var skemmtuninni gerð góð skil af okkar fólki. Rúsínan í pylsuendanum var svo þegar við sáum úrslitin á prenti og áttuðum okkur á því að „strákarnir okkar“ hefðu einnig sigrað í liðakeppninni. Það var mál keppenda að sjaldan hefðu þeir tekið þátt í jafn skemmtilegu og viðbuðaríku móti og einhverjir töluðu jafnvel um hápunkt ferils. Það eru forréttindi og ekkert minna að hafa verið þátttakandi að þessum viðburði.
Takk fyrir okkur.
Fyrrverandi og núverandi ritari FI.

föstudagur, apríl 27, 2012
Ferðadagurinn 27. apríl
Góða ferð og gangi ykkur vel að finna okkar týndu félaga.
Hér er svo eitt gott hlaupalag til að ná upp stemmingu í hópinn. Ekki samt taka texta lagsins of alvarlega.
Það var aldeilis föngulegur hópur hlaupara sem sást á göngum
Leifsstöðvar í morgunsárið. Þessi fríði
flokkur er á leið til Vínar til að taka þátt í ASCA og til að sækja þá meðlimi sem lengi hefur vantað í klúbbinn. Heyrst
hefur að Bikar K. og Bikar M. bíði eftir félögum sínum í Vínarborg.
kv.
Formi
fimmtudagur, apríl 26, 2012
Síðdegisæfing 26. apríl
Mættir: Dagur, Guðni og Cargo Kings.
Við fórum skv. EDI-plani: 25 wup/wdn; 3(5t/1e). Leiðin lá út á Nes (Gróttu) eins og venjulega þegar það er tempó, má ekki breyta út af vananum :o)
Það kom til tals að það væri slæmt að mæta ekki á æfingar því þá er talað illa um mann, betra að mæta og þá er ekki verið að baktala þig. En það sem var ekki öllum ljóst sem voru á æfingu er að það er líka talað illa um mann ef þú mætir ekki í búningsklefann :o)
Ég óska öllum ASCA-förum góða ferð og treysti því að þið verðið FISKOKK til sóma og komið heim með bikar!

þriðjudagur, apríl 24, 2012
mánudagur, apríl 23, 2012
Hádegisæfing 23. apríl
Mættir: Gurrý og Mjallhvít, sér, Dagur, Sigurgeir, Guðni, Fjölnir, Ívar, Óli.....Ársæll...veit ekki með fleiri? En allavega voru Oddurinn og viðhengið hans á alvöru æfingu en ekki einhverju fitubolluskokki, eins og sumir....
Kveðja,
Viðhengið
Vormaraþon FM
Á laugardaginn fór fram vormaraþon FM þar sem boðið var upp á hálft- og heilt maraþon.
Margir okkar félagsmanna þreyttu hlaupið með flottum árangri í frábæru veðri, sól og hægum andvara. Tímarnir birtast þegar búið er að leiðrétta þá, en einhver bilun varð í tímatökukerfi.
Einn galli var þó á gjöf Njarðar-
Tilkynning frá stjórn FM vegna Vorþonsins 2012
"Brautin í vormaraþoninu var of löng!
Þau slæmu mistök urðu við merkingar á hlaupabrautinni kvöldið fyrir keppnisdaginn að snúningskeilan við Ægissíðuna var sett niður á röngum stað eða á gamla snúningspunktinn. Þetta gerði það að verkum að brautin lengdist um nákvæmlega 111m í hvora átt. Þetta þýðir að 1/2 maraþonið var 222m of langt og maraþonið 444m... of langt. Við hörmum þessi mistök og biðjum alla þátttakendur innilega afsökunar á þessu. Margir voru nálægt því að bæta sig og í sumum tilvikum við það að brjóta niður múra sem vissulega hefðu fallið hefði þetta ekki gerst. Okkur er fullkomlega ljóst að svona lagað má bara ekki gerast. Við voru að vinna við þetta seint um kvöldið eftir vinnu í myrkri sem er engin afsökun en skýrir kannski hvernig okkur yfirsást þetta. Í björtu daginn eftir lá þetta alveg ljóst fyrir. Hér var um mannleg mistök að ræða og ekkert við því að gera úr því sem komið er. Við munum gera ráðstafanir sem tryggja það að þetta komi ekki fyrir aftur. Þær munu felast í því að fjarlægja allar eldri merkingar og merkja nýja snúningspunktinn greinilega."
F.h. stjórnar FM
Pétur Helgason formaður

sunnudagur, apríl 22, 2012
London maraþon
Einn félagsmaður hljóp í dag?
http://results-2012.virginlondonmarathon.com/2012/index.php?content=detail&fpid=search&pid=search&id=0000030F5ECC83000003B85E&lang=EN&event=MAS&ageclass=
Kv. Sbn
föstudagur, apríl 20, 2012
Freaky Friday
Mættir: Schweppes, Gamle Ole, Day, Glamúr, Johnny, B.B King, Sbn.
Fórum örstuttan túr inn í Fox því EDI strákarnir eru að fara í vormaraþonið á morgun.
Góða helgi,
Sbn
þriðjudagur, apríl 17, 2012
Síðdegisæfing 17. apríl
Mættir: Dagur, Ívar, Óli og Sigurgeir.
Eins og planið segir til um var farin róleg upphitun að Kópavogsvelli þar sem við tókum 8x800m með 400m rólegt á milli, síðan var rólegt niðurskokk heim.
Fjölnir sá sér ekki fært að mæta og æfa á heimavelli Breiðabliks þar sem hann fékk í magann í síðustu viku og ákv. þ.a.l. að æfa einn á heimavelli FH!
Undirritaður sá Ársæl, Erlu, Þórdísi og Jón Örn á hörku tempói í hádeginu.

föstudagur, apríl 13, 2012
Icelandair hlaupið 2012
Kæru félagar,
Núna styttist í 18. Icelandair hlaupið, það fer fram 3. maí nk. kl. 19:00.
Eins og alltaf þá er ekki hægt að halda svona flott hlaup án þess að fá gott starfsfólk til að vinna við hlaupið á hlaupadag. Félagsmenn eru hvattir til að skrá sig í "comments" hér að neðan og þeir félagsmenn sem starfa við hlaupið fá niðurgreiðslu á hlaupafatnaði, sem verið er að semja um. Mikilvægt er að starfsmenn mæti kl. 17:00 á höfuðstöðvar félagsins.
Nánari upplýsingar síðar.
Með von um góð viðbrögð,
Stjórn IAC

Föstudagurinn þrettándi
Mættir:
Sér: Gunnur, Hekla, Gurrý, Pan, Þórdís,Erla og Bryndís.
Saman í bæjarferð-Huld, Óli, Oddgeir, Ívar, Dagur og Sigrún.
Fórum klassískan miðbæjarrúnt á rólegu nótunum og ræddum um háleit markmið ASCA keppninnar. Haft var á orði að aldrei myndi hafa verið sent sterkara lið karla á mótið. Ég sem leikmaður spyr á móti: Hefur einhvern tíman verið sent sterkt karlalið á þetta mót?
Kveðja,
Sigrún, secretarius emeritus

fimmtudagur, apríl 12, 2012
Síðdegisæfing 12. apríl
Mættir: Dagur, Erla, Fjölnir og Sigurgeir.
Erla fór Hofs á meðan restin fór út á Nes/Gróttu í tempó skv. EDI.
Það var leiðinlegt að sjá hversu marga EDI-fara vantaði á æfingu og vonum við að þeir hafi ekki misst sjónar á markmiðunum og komi ferskir á næsta þriðjudag í spretti.
Við fréttum af Óla á hörku tempó í hádeginu.

miðvikudagur, apríl 11, 2012
Hádegisæfing 11. apríl
Mættir: Huld, Gunnur, Pétur, Guðni, Dagur, Þórdís, Sigurgeir, Óli, Ívar og Ársæll.
Það var rólegt í boði skv. EDI og var farið Skógræktarhringurinn. Eitthvað vafðist það fyrir Huld og hennar föruneyti hvernig Skógræktarhringurinn er og fór hún, Þórdís og Pétur einhverja furðulega útgáfu af leiðinni. Ársæll mætti seint en við mættum honum á heimleið.
Á morgun ætla EDI-farar að fara tempó kl. 17:08

Síðdegisæfing 10. apríl
Mættir: Guðni, Dagur, Óli, Ívar, Huld, Fjölnir og Sigurgeir.
Þar sem sprett- og tempóæfingar eru farnar að taka 80-90 min hafa EDI-farar ákveðið að taka þessar æfingar kl. 17:08 á þriðjudögum og fimmtudögum til að geta klárað þær skv. æfingaráætlun. Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir að mæta með okkur á þessum tíma og skemmta sér í góðum hóp :o)
Í dag voru 25wup/wdn + 7x800m sprettir í boði. Við fórum frá HRN að Kópavogsvelli þar sem sprettirnir voru teknir á braut. Allir voru ánægðir með að taka þetta á Kópavogsvelli nema Fjölnir sem fékk í magann og átti erfitt á heimavelli Breiðabliks! Vonandi mun hann taka völlinn í sátt og mæta ferskur næsta þriðjudag.

miðvikudagur, apríl 04, 2012
Hádegisæfing 4. apríl
Það var fámennt í dag, aðeins undirritaður og Ársæll.
Fórum rólega Hofs eins og EDI-planið gerir ráð fyrir.
Kv. Sigurgeir
Fórum rólega Hofs eins og EDI-planið gerir ráð fyrir.
Kv. Sigurgeir
þriðjudagur, apríl 03, 2012
Hádegisæfing 3. apríl
Mættir á 12:08 æfingu : Dagur, Sveinbjörn, Sigurgeir, Fjölnir, Guðni og Gunnur
Dagsskipunin hljóðaði uppá 6x800m með 400m/2mín rólegt á milli. Æfingin var tekin í Fossvogsdalnum og gekk vonum framar.
Einnig sást til Ársæls, Önnu Dísar og Þórdísar sem fóru fyrr.
Dagsskipunin hljóðaði uppá 6x800m með 400m/2mín rólegt á milli. Æfingin var tekin í Fossvogsdalnum og gekk vonum framar.
Einnig sást til Ársæls, Önnu Dísar og Þórdísar sem fóru fyrr.
Burrito - málsverður sigurvegara
Í framhaldi af umræðu um mataræði á hlaupunum vildi ég benda á hávísindalega grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun um ágæti og árangur mexíkóskrar matarlistar á keppnisfólk í öllum íþróttagreinum.
Fyrstur með nýjan fróðleik.
Góðar stundir,
Dagur
föstudagur, mars 30, 2012
30. mars - Bæjarrúntur á föstudegi
Ágætis mæting í mildu veðri: Dagur, Ívar, Sigrún, Óli rakari, Oddgeir, Gunnur, Willy og Guðrún Ýr.
Bæjarrúnturinn hlaupinn, enda jú föstudagur, og ýmislegt skrafað á meðan. Vegalengd alls 8 km.
Bæjarrúnturinn hlaupinn, enda jú föstudagur, og ýmislegt skrafað á meðan. Vegalengd alls 8 km.
fimmtudagur, mars 29, 2012
"Oh Vienna" - Útlit fyrir hörkukeppni í ASCA
Útlit er fyrir hörkukeppni í ASCA-víðavangshlaupinu í lok apríl nk. Eins og áður hefur komið fram fer hlaupið fram í Vínarsnitseli og er í boði Austrian.
Þátttaka er með allra besta móti en 6 kvennalið og 7 karlalið hafa boðað komu sína. Stjórn Skokkklúbbs Icelandair hefur unnið hörðum höndum að því að koma saman sterku en jafnframt léttleikandi liði og er óhætt að segja að það verði valinn kven(maður) í hverju rúmi þegar lagt verður af stað til Vínar 27. apríl nk.
Hér að neðan má sjá þau lið sem nú þegar hafa staðfest þátttöku sína í ASCA-víðavangshlaupinu (staðfestur fjöldi þátttakenda er innan sviga).
Konur:
Austrian Airlines (5)
British Airways (4)
SAS (2)
Icelandair (4)
Lufthansa (6)
Iberia (3)
Menn:
DHL (6)
Iberia (7)
Lufthansa (6)
SAS (3)
Austrian (8)
Icelandair (6)
British Airways (6)
Lið Icelandair verður tilkynnt hér á bloggsíðunni á allra næstu dögum.

Tempo Thursday the 29th
Mættir í forstart: Dagur, Óli, Fjölnir, Johnny og við bættust Huld, Sigrún og Omen. Sóttir voru: Guðni, Gurrý og Pan. Strákarnir hituðu upp einhverja milljón hringi og síðan var haldið að HR og tekið 2* 12 mín. tempó með 3 mínútna hvíld. Frábært veður var og allir í stuði, eða því sem næst. Niðurskokk um Öskjuhlíð til baka.
Alls um 12-13k
Kveðja,
S
þriðjudagur, mars 27, 2012
Brekkusöngurinn hinn síðasti, 27. mars
Mættir: Gurrý, Peter Pan, aðeins sein, Ibenholt, Day, Omen, Gamle Ole ( á skilorði), Sbn úr fylgsni sínu. Eftir smá upphitun fórum við 3*3 brekkuspretti við viðvarandi hlátrasköll og glaum. Mikill söknuður verður af þessum æfingum, það er ljóst! Síðan smá niðurskokk og samskol á Natura Spa hjá drengjakórnum.
Lærdómur dagsins: Því verra, því betra!
Kveðja,
Fulltrúi ritara
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)