Mætt: Björgvin, Óli, Sigurgeir, Ágústa og Brynja.
Karlpeningurinn á þessari æfingu þarf að bæta sig þegar kemur að mannasiðum! Við fórum af stað án þess að velta fyrir okkur hvort stúlkurnar vildu koma með okkur eða ekki. Fórum Suðurgötuna á fínu tempói. Við ræddum það hvort það truflar Dag að eiga ekki besta tíma ársins í 10 km hlaupi í FISKOKK.
Ágústa og Brynja fórum 5 km. Við lofum að skilja þær ekki eftir aftur.
Kv. Sigurgeir
3 ummæli:
Þar sem ég þoli illa samkeppni sem alkunna er hef ég tekið saman við 2nýja æfingafélaga sem gera út á morgnana. Fórum 13K í morgun.
Kv. Sigrún
Þetta er framhjáhald! Má hlaupa með öðrum en FISKOKK??? Er ekki möguleiki á að fá sameiginlegt forræði?
Kv. Sigurgeir
Jú, skiptivika/dagar. Kem með ykkur í dag ef ég fæ 2x meðlag! :)
SBN (með leyniplan)
Skrifa ummæli