mánudagur, nóvember 30, 2009

Hádegisæfing - 30.nóv

Mættir: Jói, Jón Örn, Dagur, Guðni, Sigurgeir og Fjölnir
Gestaþjálfari varð fyrir nokkrum vonbrigðum með mætingu í dag hvort sem um er að kenna að loksins lét veturinn sjá sig eða hvort Huld sé með svona mikið aðdráttarafl miðað við okkur hina (líklega). Það var allavega boðið upp á bráðskemmtilega æfingu við allra hæfi og var góður rómur gerður að frumraun gestaþjálfarans. J&J fóru sérleiðir en restin fór Hofsvallagötu. Helmingur hópsins hljóp aðeins fram úr sér og fóru perra-lengingu en annars fór allt vel fram.
Á morgun er svo boðið upp á fullveldishlaup og spretti.

Kveðja, Fjölnir

sunnudagur, nóvember 29, 2009

Drög að æfingaáætlun vikunnar

Aðalþjálfari hefur falið mér að vera gestaþjálfari vikuna 30.11 til 04.12 og hér hafið þið drög að æfingaáætlun fyrir næstu daga.

30.nóv, Hefðbundinn mánudagur

Róleg Hofsvallagata við allra hæfi, möguleiki á að stytta og lengja eftir smekk en engin læti!

01.des, Fullveldishlaup FISKOKK

Fullveldisdagurinn verður tekinn af krafti og því við hæfi að hlaupa rösklega niður á Austurvöll heiðra Jón Sig. og þaðan að Tjörn og taka nokkra Jónasarspretti.

02.des, Moð á miðvikudegi

Vesturbær eða jafnvel Kópavogur/skógrækt, fer eftir veðri og stemmningu. Rólegt og hentar öllum.

03.des, Torture Thursday

Tempóhlaup, mögulega með Powerade Simulator viðbót. Ekki fyrir viðkvæma en þó boðið upp á fleiri útfæslur ef menn treysta sér ekki.

04.des, Freaky Friday

Óhefðbundinn hringur í rólegheitum og kjaftagangi.

Gestaþjálfari áskilur sér rétt til að breyta dagskrá eftir veðri, vindum og stemmningu hverju sinni.

Kveðja, Fjölnir

föstudagur, nóvember 27, 2009

Bæjarrúntur - föstudaginn 27. nóv

Shalom shalom.
Mættir í dag með móral dauðans eftir kalkúnaveisluna í gær, Fjölgeir (Sigurgeir og Fjölnir), Gnarr-inn og Bjútí. Eini maðurinn sem mætti í dag með hreina samvisku (því hann mætti í gær líka) var hinn alræmdi John Eagle, sem Bjútí veit núna alveg hvað heitir :-)
Þessi kvintet "beið við staurinn" á bílastæði HLL eftir Huld Hellweek og tautuðu út í loftið, "hvað eigum við að gera, hvert eigum við að hlaupa....etc." Það varð hópnum til bjargar að yfirþjálfari og formaður klúbbsins gekk í borgaralegum klæðum yfir bílastæðið í átt að mötuneytinu og sagði hópnum að fara rólegann bæjarrúnt (það stóð víst hér á síðunni). Að svo mæltu runnu 5 menningarnir af stað í hálku og snjó. Jón Örn (John Eagle) fylgdi hópnum framan af en fór síðan eigin leið og endaði í einhverjum 6 kvikindum. Hinir fóru hefðbundinn bæjarrúnt þó með því twisti að Gnarrin var sendur í 1 Jónas í refsingu, sem var reyndar ekki svo mikil refsing en hvað um það. Hópurinn fór 8 Km á 41:20.
P.s. allir þeir sem mættu í dag höfðu létst (ekki látist) frá því stigið var á vigt síðast, er það vel.
Í guðs friði,
Bjútí

fimmtudagur, nóvember 26, 2009

Ægisíða – 26. nóvember

Samkeppni við Thanksgiving máltíð í mötuneyti var gestaþjálfara ekki í hag í hádeginu en þá kom skýrt í ljós hverjir eru alvöru og hverjir láta kalkún ganga fyrir hlaupaiðkun. Þótti því öruggara að tryggja einhverja mætingu og gestahlaupari kallaður til. Sibba mætti því HH til trausts og halds, auk hennar létu eftirtaldir sjá sig: Guðni, Jói, Alvar, Ólafur og Tómas. Lagt var af stað áleiðis vestur í bæ, Jói fór Hofsvallagötu, Guðni, Sibba og Huld fóru Meistaravelli, aðrir styttra. Sérlega ánægjulegt er að segja frá því að þetta var lengsta hlaup Jóa í 6 ár og hann hefur stefnt að því í nokkurn tíma að hlaupa Hofsvallagötuna. Því takmarki er nú náð, til hamingju Jói! Reyndu þau þrjú sem eftir voru að gera eltingaleik úr hlaupinu og þurfti Guðni að lengja tvívegis til að ná einhverri spennu í þann leik, fór þó svo að lokum að Guðni náði fyrstur að Kafara og er honum hér með óskað til hamingju með þann árangur.

Ekki er ljóst hvort gestaþjálfari kemst á æfingu á morgun en þeim sem mæta er frjálst að taka sýningarhlaup um miðbæinn að eigin vali.

Góðar stundir,

HH


miðvikudagur, nóvember 25, 2009

Hádegisæfing 25. nóvember - Vesturbær-Nes

Já góðann og blessaðann.
Hössi mætti á sjálfrennireið af Toyota gerð á slaginu "Zwölf" við innganginn á Icelandair HO. Dagur, Ársæll og Bjútí sátu í vestur í bæ að sundlaug vesturbæjar. Þar voru mættir fyrir Óli Breim og nýr félagsmaður úr Fjárvakri sem búið var að kynna held ég og mér er alveg fyrirmunað að muna hvað heitir núna enda syfjaður með afbrigðum og ekkert of vel gefin "to begin with". Anyhow. Hópurinn fylgdist að fyrstu nokkurhundruð metrana en Ársæll tók svo nýliðann og fór með hann um stíga vesturbæjar og -ness en Bjútí elti "lordana" í hlaupaklúbbnum út að Lindargötu og fór þá vel þekktu leið til baka norðanmegin á nesinu, á Eiðistorg og svo heim í laug. Lordarnir "bættu við" á miðri leið frá Lindargötu og fóru auka hring vestur í Golfklúbb (þrátt fyrir fimbulkulda og rok)og svo Marathon-leiðina eftir ströndinni og svo heim í laug. Þessi hópar fóru ca. 5, 7 og 9 Km.
Þa'eldénú!
Kv. Bjútí

Myndir af nýjum félagsmönnum úr Icelandair Cargo

Sigurjón Ólafsson
Jón Baldursson
Nú þekkiði þá ef þið rekist á þá á förnum vegi og getið kastað á þá kveðju.


þriðjudagur, nóvember 24, 2009

Æfing á morgun – 25. nóvember

Á morgun verður ekkert heitt vatn í höfuðstöðvum og næsta nágrenni þannig að þeir sem vilja endilega fara í sturtu eftir æfingu verða að snúa sér annað. Þá datt gestaþjálfara að sjálfsögðu í hug að tilvalið væri að þrífa sig í Nauthólsvík eftir gott sjóbað en sú tillaga var felld hið snarasta og fullyrt að þar væri örugglega ekkert heitt vatn heldur.

Því verður farið akandi frá hóteli að Vesturbæjarlaug kl.1200 og hlaupið þaðan. Tilvalið er að fara hring um Seltjarnarnes, t.d. Vesturbæjarlaug, Nesvegur, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd, Eiðsgrandi, Hringbraut sem gera tæpa 7km. Þetta má hlaupa rólega, hratt eða þar á milli.

Æsingur – 24. nóvember

Á æfingu í dag tókst einhverjum að telja 13 manns. Alvar, Björgvin, Bryndís, Dagur, Fjölnir, Guðni, Hössi, Ingunn, Jói, Sigurgeir, Sveinbjörn og undirrituð. Glöggir lesendur átta sig nú á því að einn vantar til að ná tölunni 13. Sá sem verður fyrstur til að benda á þann sem vantar í upptalninguna fær verðlaun.

Dagskipanin var að hita upp að kafara og taka þaðan 500m spretti í vesturátt, 4-6 stykki eftir smekk, áhuga og þörfum hvers og eins. Stærsti hluti hópsins tók þátt í þessari dagskrá og fór svo að lokum að strákarnir vældu út einn til viðbótar, svo úr urðu 7 sprettir hjá hluta hópsins og endaði í æðisgengnum endaspretti. Þurfti gestaþjálfari að beita hörðu til að koma í veg fyrir áttunda sprettinn þvílík var þörfin fyrir spretti, greinilega uppsöfnuð.

mánudagur, nóvember 23, 2009

Æskuslóðirnar – 23. nóvember

Mætt voru í björtu og köldu veðri Ása, Björgvin, Dagur, Alvar, Jón Örn, Jói og Sveinbjörn. Eftir að lagt var af stað reyttust skrautfjaðrirnar smám saman af hópnum uns eftir stóðu hin þrjú fyrstnefndu ásamt gestaþjálfaranum HH sem sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Langþráð tækifæri til stjórnunar var nýtt til hins ýtrasta og æskuslóðir HH heimsóttar. Hlaupið var sem leið lá í Kópavog, yfir Borgarholt, fram hjá Kópavogskirkju og Kastalagerði hvar hin íturvaxna HH ólst að nokkru leyti upp í álfasteinunum en þar voru í uppvextinum lögð drög að íðilfögrum líkamsvexti hennar með steinaburði og öðrum æfingum. Þaðan var haldið stystu leið til baka og náði æfingin 8km. Alvar, nýr meðlimur klúbbsins, sýndi úr hverju hann er gerður og rifjaði upp gamla takta. Hljóp hann með okkur að Kringlumýrarbraut, sneri þar við og náði 5km. Jón Örn hætti við að fara í gufu en fór þess í stað að dælu. Jói og Sveinbjörn pössuðu hvor annan í séræfingum í kirkjugarði og skógi og gerðu þar hinar ýmsu æfingar, að sögn. Einnig sást til Baldurs á hlaupum. Heyrst hefur að fólk hafi verið að spara sig á æfingunni til þess að koma sterkt inn á morgun þegar sprettir verða á boðstólum. Það skal þó tekið fram að æfingin á morgun er við allra hæfi og allir geta tekið þátt, hver á sínum hraða.

Kveðja, HH

föstudagur, nóvember 20, 2009

Næsta vika í boð Huld Hellweek

Bully-the-ginger-hlaup

Í tilefni af degi rauðhærðra (pick on the gingers) tíndi undirritaður á sig allar þær rauðu hlaupaspjarir sem hann átti auk rauðrar hárkollu og bjó sig undir fórn eineltis. Mætt: Huld, Dagur, Baldur Bláfugl, Sveinbjörn, Sigurgeir, Oddgeir og undirr. Björgvin og Jón Örn úr Fjárvakri mættu líka en fóru sérleið. Besta veður vikunnar, logn, léttskýjað og hiti +5. Baldur var á fundi á 3h. og losnaði óvænt í hádeginu. Hann mundi eftir hlaupakitti í skottinu í Skódanum, eitthvað sem hann hafði gleymt undir varadekkinu frá í sumar í Jökulsárhlaupinu. Svona eiga menn að bjarga sér.

Hlaupinn var Freaky Friday hringur. Sæbraut-Arnarhlóll. Arnarhóll er góður aftökustaður, ber hátt í landslaginu og þangað sést víða að. Þar var myndaður hringur um rauðkollinn og hann tuskaður dáldið til, þangað til hann lagði á flótta (með tilþrifum, á harða spretti) sem leið lá niður Arnarhólinn, út Austurstrætið, yfir Hallærisplanið, fram hjá Alþingi og í gegnum Ráðhúsið. Þar lauk þessum eltingaleik í góðri sátt. Síðan var tölt heim á leið.

Kveðja, Óli.

fimmtudagur, nóvember 19, 2009

Freaky Red Day

Hlauparar minntir á að mæta í rauðu á morgun, helst að vera með rauðar kollur eða húfur til stuðnings rauðhærðum.
Kveðja, Óli

Þrautakóngur í Sóllandi

Mættir: Jói, Dagur, Sigurgeir, Ása, Rúna Rut, Kalli, Oddgeir og undirritaður. NA-kaldi, skýjað, +5 gráður.
Twin Peaks verkefni frestað. Í staðinn tekið Plan B, skógarþraut í Öskjuhlíð þar sem hlaupinn var einn stór hringur um Öskuhlíð sem mest í náttúrunni. Byrjun var hefðbundin þangað til komið var að Kirkjugarðssvæði. Hlaupið inn í Sólland Duftgarð og hitað upp fyrir tvo spretti með þrautakóng á meðan hlaupinn var kynningarhringur. Að honum loknum skiptu menn sér í tveggja manna hópa þar sem annar aðilinn gegndi hlutverki héra. Tekinn var sprettur og hérarnir leiddu hlaupið - einn hringur. Áð og svo haft hlutverkaskipti fyrir seinni hring. Eftir þetta var Sólland kvatt og haldið áfram austur og norður fyrir Öskjuhlíð og hringnum lokað með spagetti brokk-ólí í skóginum.
Tvennt minnisstætt: Kalli frumreyndi nýja byltingarkennda tegund af hlaupaskóm sem líkjast mest górillufótum, svartir ilskór. Nú vantar bara hárígræðlsu á bak og bringu. Svo hitt að Sigurgeir minnti á dag rauðhæðra á morgun "pick on reds day" Þannig verður hlaupið á morgun tileinkað rauðhærðum. Allir að mæta með rauðar kollur og í rauðum búningum á Freaky Friday.

Óli

miðvikudagur, nóvember 18, 2009

Boðhlaup á Klambratúni

Mættir: Dagur, Bryndís, Sveinbjörn, Guðni, Jói, Jón Gunnar, Huld, Jón Örn, Baldur, Rúna Rut og undirritaður. Veður: Logn, léttskýjað og hiti við frostmark.
Hlaupið að Klambratúni og þegar þangað var komið var gerð stutt grein fyrir boðhlaupsverkefninu. Um var að ræða tvo hringi út frá miðju svæðisins, annarsvegar hægri hring, í átt að Miklubraut, út fyrir trjábeðið og með fram því samsíða Miklubraut og svo inn á aftur í sv-horni og til baka. Hinn hringurinn var rangsælis í austur og svo vinstri beygju hring, mun styttri og alltaf í sjónlínu frá miðju. Hringirnir voru svo prufukeyrðir á hægu brokki en svo kom að skiptingu í lið og þá fóru mál að vandast. Eftir nokkrar diskússjónir þá kom Dagur með nokkuð góða lausn (algóriþmi úr IT deildinni). Það var að hafa tvö 5 manna lið og til að sem flestir hefðu eitthvað fyrir stafni af því liðin voru svo fjölmenn, að taka báðar hlaupaleiðir í notkun strax í stað þess að afgreiða einn hring í einu. Þessi flækja gekk upp og það sem meira var, keppnin var nokkuð spennandi. Eins og í gamla daga var ekki valið í lið á jafnréttisgrundvelli heldur kosið og byrjað á þeim bestu (kallast einelti í dag). Án þess að fara nánar út í þetta þá reynist jafnt með liðum. Þau máttu ákveða sjálf skipan í keppnisröð og hringi og keflin (skóflur) gengu greiðlega milli keppenda á meðan á keppni stóð. Í restina varð gríðalegt einvígi á milli Sveinbjörns og Rúnu Rutar á lokasprettinum en Sveinbjörn (íslandsmethafi í spretti) rauf hljóðmúrinn á síðustu metrunum og innsiglaði sigur fyrir sitt lið. Nokkrar mínútur voru svo notaðar í lokin í sprikl. Myndaður var hringur og þurfti hver og einn að bjóða hinum upp á smá Jane Fonda áður en skokkað var heim á leið.

Heyrst hefur að Gestaþjálfari næstu viku verði Huld og gárungarnir farnir að tala um Huld HellWeek.

Með þökk fyrir góðan dag,
o-l-i-att-icelandair-punktur-is

þriðjudagur, nóvember 17, 2009

Powerade Vetrarhlaup - Nóvember úrslit

Hér eru tímarnir á okkar fólki:

39:18 Höskuldur Ólafsson (þriðji í aldursflokki)
43:02 Oddgeir Arnarson
43:36 Baldur Haraldsson
43:58 Jón Gunnar Geirdal
44:32 Hólmfríður Ása Guðmundsdóttir (sigurvegari í aldursflokki)
44:34 Sigurgeir Már Halldórsson
45:45 Huld Konráðsdóttir (sigurvegari í aldursflokki)
46:20 Fjölnir Þór Árnason
47:20 Sigurður Óli Gestsson
48:28 Jens Bjarnason
53:31 Tómas Beck
53:36 Rúna Rut Ragnarsdóttir (tíunda í aldursflokki)
56:49 Sigurjón M. Ólafsson

Fjölmennur hópur og glæsilegir fulltrúar klúbbsins.

Kveðja, Dagur formaður

Píslarhlaup

Mættir: Jói og Sveinbjörn (sérsveit), Dagur, Guðni, Hössi, Huld, Alvar og undirritaður. Bjútí er með okkur í anda þar sem hann tekur armbeygjur í hundraðatali á hverjum degi og rappporterer reglulega. Veður: A-3, skýjað, skyggni ágætt, hiti 2 stig. Alvar fékk verkefni í Öskjuhlíð, hinir fóru í "Holy Crusade" á vit tilbeiðsluhúsa íslenskra trúfélaga. Verkefnið fólst í því að "safna" 7 kirkjum, berja á dyr á hverjum stað og fara með 10 armbeygjur í stað bæna. Tillagan sem lá fyrir var eftirfarandi: Landakot-Dóm-Frí-7dags-Hall-Há-Óháði. Þetta náðist með því að fara stystu leið á milli og kom í ljós að sennilega er hægt að ná 8 kirkjum í hádeginu með því að bæta við Fíladelfíu. Og þetta gerði sérsveitin óbeint. Hún varð snemma viðskila með því að sniðganga kaþólikkana en velja þess í stað Fíldadelfíu. Þannig náðu báðir hópar markmiðum dagsins, sameinuðust svo hjá Óháðum og tekið létt skokk heim.

Epilogue: Dagur kom með skemmtilega vídd á leiðinni, en það er að stökkva og príla yfir allar hindranir sem verða á veginum. Þetta gæti orðið skemmtilegt verkefni fyrir hlaupahópinn að vinna úr.

Óli.

mánudagur, nóvember 16, 2009

Mánudagur 16. nóvember 2009

Verkefni: The Red Neck Run um Hálsatorg í Kópavogi. Mættir ásamt undirrituðum: Dagur, Jón Gunnar, Sigurgeir, Alvar, Sveinbjörn, Jói, Jón Örn og Huld. Jói og Alvar fóru sérleiðir en hin fóru suður í Kópavog. Sprettur var tekinn upp úr Fossvogsdal eftir svokallaðri Skeljabrekku, yfir Hamraborg og niður stíg meðfram Vogatungu niður í Kópavogsdal. Þar var áð og svo tekið rólegt tempó upp aftur, yfir Hálsatorgið með viðkomu á viðhafnarpallinum og stystu leið heim. Veðrið lék við okkur, léttskýjað, hægur vindur og höfuðborgarsvæðið skartaði sínu fegursta.
Óli

föstudagur, nóvember 13, 2009

Gestaþjálfari næstu viku

Gestaþjálfari næstu viku verður Ólafur Briem (The Karate Kid).

Hann hefur sett saman eftirfarandi æfingaprógram sem hann mun fylgja eftir með harðri hendi.

Sjáumst á æfingum í næstu viku.

Kveðja,
Dagur, formaður

Freaky Friday

Það var svo sannarlega fríkaður frjádagur í dag og á hann mætti einvala lið: Óli, Dagur, Oddgeir, Bjöggi, Bryndís, Huld og Sigrún. Fórum óhefðbundinn miðbæjartúr með viðkomu í 3 bílastæðahúsum og enduðum í Öskjuhlíð og allt. Ljómandi gott veður var og rifjuð upp ýmis skemmtileg atvik frá Frankfurt og lögð drög að næsta ASCA móti í Dublin. Ljóst er á þessari stundu að mikil samkeppni verður um að komast í liðið en þó liggur fyrir að gata skemmtinefndar er greiðfær, hvort sem meðlimir hennar teljast hlaupafærir eða ekki. Ætlunin er að gefa út sönglagahefti af þessu tilefni fyrir þá sem eru áhugasamir um að syngja með og efnt hefur verið til nafnasamkeppni á dúóið með þeim ÓB og SBN. Áhugasamir vinsamlegast stingið upp á viðeigandi sviðsnafni í "comments" hér að neðan.
Alls 7,4 ca.
Góða helgi og gat ekki látið hjá líða að spila lag fallinns meistara og bendi á nýútkomna bók um ævi hans.
Sigrún

fimmtudagur, nóvember 12, 2009

Skemmtiatriðið frá ÓB og SBN

Atriðið okkar Óla í Frankfurt náðist ekki á myndband af meðhlaupurum á meðan að á því stóð en kvikmyndagerðarmenn sem voru staddir á veitingastaðnum náðu þessu myndskeiði og sendu mér í morgun. Glögglega má greina, af viðbrögðum áhorfenda, að þarna var um mjög vandað og skemmtilegt atriði að ræða. Það skal tekið fram að þetta var heimsfrumsýning:
Smellið hér
Kveðja,
Sigrún

miðvikudagur, nóvember 11, 2009

Hádegisæfing - 11. nóvember

Mættir : Oddgeir, Jói, Sveinbjörn, Jón Örn, Björgvin, Dagur, Rúna Rut, Sigurborg og þeir félagar Ólafur og Baldur frá Icelandair Hotels (prospects).

Til fróðleiks er hér upplýsingar um inngöngu í Hells Angels af wikipedia :
"To become a full member, the Prospect must be voted on by the rest of the full club members. Prior to votes being cast, a Prospect usually travels to every chapter in the sponsoring chapter's geographic jurisdiction and introduces himself to every Full-Patch. This process allows each voting member to become familiar with the subject and to ask any questions of concern prior to the vote. Successful admission usually requires more than a simple majority, and some clubs may reject a Prospect for a single dissenting vote. Some form of formal induction follows, wherein the Prospect affirms his loyalty to the club and its members. The final logo patch (top Hells Angels rocker) is then awarded at this initiation ceremony. The step of attaining full membership can be referred to as "being patched"."

Setning dagsins er fengin frá Jóni Erni eftir hlaup : "Hvaða sturtu má ég nota?"

Kveðja,
Dagur, Formaður

ASCA Cross Country Úrslitin frá upphafi

http://docs.google.com/leaf?id=0B3cTnuWiB8TsOTI3YTQ4YTItMTU2MS00YzZlLWJhOTQtNGM0MTAyNjkwNDE2&hl=en

Myndir frá ASCA Frankfurt

http://picasaweb.google.com/fiskokk/ASCACrossCountry2009KelsterbachFrankfurt?feat=directlink

þriðjudagur, nóvember 10, 2009

Hádegisæfing - 10. nóvember

Mættir : Ólafur, Bryndís, Huld, Sveinbjörn, Jói og Dagur
Allur hópurinn fór bæjarrúntinn í vetrarblíðunni með styttingum.

Bryndísi lenti í því að reka tærnar í misjöfnu í gangstéttinni við Ráðhúsið og skall í götuna. Hún hruflaði sig á hendinni og allir urðu skelkaðir, en mín stökk á fætur aftur og hélt ótrauð áfram. Henni Bryndísi okkar er ekki fisjað saman - algjör nagli!

Við Alþingishúsið og fyrir framan Stjórnarráðið stóð Jói fyrir mótmælum, mótmælti meðan annars skattahækkunum og lýsti afstöðu sinni til sitjandi forsætisráðherra.

Á leiðinni rákumst við á orðið 'rýmingartími' og geta félagsmenn velt fyrir sér merkingu og tilgangi þessa orðs.

Ólafur Briem mun verða gestaþjálfari í næstu viku.

Kveðja,
Dagur, formaðurinn

Nýr félagsmaður

Jón Baldursson, Icelandair Cargo.

Jón æfir mikið þessa dagana og hljóp meðal annars, að eigin sögn, nýlega í 12 mínútur án þess að stoppa.

mánudagur, nóvember 09, 2009

Hádegisæfing 9. nóv.

Mættir í dag: Jói sér, Fjölnir, Sigurgeir, Dagur, Gnarr, Sigrún, Huld og Ása ásamt Bjútí og Sveppa. Fórum Hofs og Kapla en Jói og BB voru á eigin leið.
Alls 8-9K
Kveðja,
Aðal

Eftirskrift


Það er e.t.v. við hæfi að skrifa nokkur lokaorð um ferðina til Frankfurt. Sem kunnugt er gekk hlaupið vel og brautin var ekta "cross-country" með laufhrúgum, hæðum og hólum og drullusvaði á viðeigandi stöðum. Einnig rigndi nokkuð, sérstaklega í fyrri hlutanum, þegar konurnar hlupu. Konur enduðu öruggt í 2. sæti og voru það Lufthansa vélmennin sem sigruðu og sungu á meðan "Wir sind die Roboten", með Kraftwerk. Okkar stúlkur þóttu hinsvegar bera af sökum fallegs limaburðar, frumlegra búninga og líflegrar framkomu. Þegar karlarnir spreyttu sig var að mestu hætt að rigna, en brautin var þeim mun gljúpari og þyngri. Einn af okkar frábæru liðsfélögum féll við fót á steinvölu og kom af þeim orsökum nokkuð skítugri en hinir í mark en kláraði engu að síður með miklum sóma. Karlaliðið endaði öruggt í 4. sæti þó þurft hafi að bíða til kvölds með að fá það staðfest. Það var hið fótfráa lið Iberia sem sigraði örugglega, enda flestir með spretthlaupsfætur úr Zöru á Spáni.

Eftir hlaup var hádegisverður að hætti heimamanna og sáu keppendur nú sína sæng útreidda með mat og drykk í huga. Það voru því ákveðin vonbrigði þegar í ljós kom að "chili con carne" súpan var nokkuð sérkennileg undir tönn og langþráður bjórinn, við nánari eftirgrennslan, reyndist vera "alkoholfrei" og "isotonisch" í þokkabót. Keppendur voru þó fegnir að hann var vottaður skv. Reinheitsgebot þeirra Þjóðverja. Það sem lýsti upp annars langdreginn hádegisverð var að sjálfsögðu þegar Huld Konráðsdóttir tók við verðlaunum fyrir 1. sæti kvenna "overall".

Milli hádegisverðar og kvölds liðu nokkrir klukkutímar sem voru nýttir til skoðunarferðar um borgina Frankfurt og skoðuðum m.a. meintan rómverskan vegg í fylgd eins Lufthansakeppanda, Thomas Pittack sem vildi ólmur slást í för með hinum skemmtilegu íslensku keppendum.

Eftir velheppnaðan bæjartúr, nokkra skyndibita og drykki, var haldið heim á Mercure hótel, þar sem heiðurshjónin Bryndís og Úlfar höfðu ásamt Huld undirbúið herbergispartý af miklum ágætum. Strax í kjölfarið héldum við á veitingastað hótels þar sem verðlaunakvöldverðurinn fór fram. Maturinn var góður en allt utanumhald afar langdregið og ekki til þess að hressa manskapinn og tók þá íslenska liðið til sinna ráða til að brjóta upp samkomuna. Þau Ólafur Briem og Sigrún Birna Norðfjörð fluttu írska slagarann "The Wild Rover" sem tileinkaður var Air Lingus, sem var fjarverandi sökum bágs efnahagsástands, og flutti Ólafur nokkur upphafsorð af því tilefni. Skemmst er frá því að segja að þetta atriði sló rækilega í gegn svo eftir var tekið og strax hefur verið lögð inn beiðni um að atriðið verði endurflutt í Dublin á komandi vori. Fleiri atriði eru þó til reiðu ef til þess kemur í fyllingu tímans.
Eftir þessa uppákomu leystis samkoman fljótlega upp og héldu hinir alhörðustu á nærliggjandi knæpu þar sem töluð var danska af miklum móð, af sumum a.m.k. Var það mál manna að þessi staður hefði verið "En hundeliderlig kneppekneipe" sem útleggst að sjálfsögðu sem hundleiðinleg kráarbúlla, ekki satt?
Samdóma álit allra íslensku keppendanna var að ferðin hafi verið frábær í alla staði og að nú sé liðinu ekkert að vanbúnaði við að hefja æfingar af fullum krafti fyrir næstu ferð í vor. Det glæder vi os alle sammen til, det kan man nok sige.
Virðingarfyllst,
Sigrún Birna Norðfjörð, ritari.


laugardagur, nóvember 07, 2009

Myndir von Frankfurt





















Race day 7th of nov.

Hlaupið gekk vel. Huld sigraði "overall" en kvennalið í 2. sæti. Úrslit liggja ekki alveg ljóst fyrir fyrr en eftir Awards dinner í kvöld en veður var vott, blaut og moldug braut en svaka stuð og allir kláruðu með töluverðum sóma. Karlar voru góðir en komust ekki í verðlaunasæti. Meira síðar, erum á leið í bæjartúr.
Kveðja,
Aðal

Stadan- FRA

Hingad komust allir heilu og höldnu i gaer; Ulfar, Bryndis, Huld, Oddgeir, Sigrun, Baldur, Dagur, Jonathan, Sigrun Tryggva og Oli. Attum notalega fjölskyldustund a veitingastad i reykmettudum herbergjum hvar vid snaeddum mismunandi gott snitzel ad haetti heimamanna og skelltum i okkur kartöflukrokettum eda frönskum med. Eftir baenastund og öndunaraefingar leggur hopurinn af stad i rutu a eftir a keppnissstad.
Meira sidar, ;)
Adal

fimmtudagur, nóvember 05, 2009

Hádegisæfing 5. nóvember

Mættir í dag á aðstoðaraðstoðarþjálfaraæfingu þar sem aðstoðarþjálfari var augljóslega fenginn til aðstoðar við aðstoðarþjálfara, til að stýra æfingu. Þessir mættu: (kvk) Rúna Rut, Huld, Sigrún og (kk) Guðni (aðstoðarmaður), Fjölnir, Gnarr Utd., Dagur, Oddgeir og Jói á eigin vegum. Nokkrir möguleikar voru í boði: Suðurgata, Hofs, Kapla (með blaðburði) eða Akranes. Nokkrir tóku tempóæfingu, aðrir rólegri enda er ASCA keppnin á laugardag og hópurinn heldur utan í fyrramálið á vit ævintýra. Nokkur skörð hafa verið hoggin í hópinn en liðið heldur glaðbeitt utan og lofar frásögn netleiðis, eftir því sem þurfa þykir. Tekið á flugvellinum á morgun (tímamismunur skiljú?).

Alls á bilinu 6-7-8-9K
Góðar stundir,
Sigrún

Nýr félagsmaður

Sigurjón Ólafsson, Icelandair Cargo, hljóp RM 2009 10k á 54:21

miðvikudagur, nóvember 04, 2009

Nýr félagsmaður

Jón Örn Brynjarsson er nýjasti félaginn, starfar hjá Fjárvakri og mætti á æfingu í hádeginu.

Dagur
Formaður

Keppnistreyjur - ASCA

Samkvæmt ýtrustu kröfum þarf keppnisliðið í ASCA að vera í löggildum keppnistreyjum þegar það stillir upp á ráslínunni í Frankfurt á laugardaginn.

Eitthvað vantar uppá lagerinn. Þess vegna ...

... þeir sem eru með nýjar keppnistreyjur í sínum fórum og eru ekki að fara, vinsamlega komið þeim hreinum og stífpressuðum til fararstjóra án tafar
.. eir sem eru að fara og eru með keppnistreyju látið farastjóra vita

Við þurfum að tryggja að við mætum með löglegt keppnislið, annars er betur heima setið.

Dagur
Formaður

Hádegisæfing 4. nóvember

GRÍÐARLEGA GÓÐ MÆTING Í DAG. Tzwölf laute (tólf manns) + 1 utanklúbbsmaður úr Fjárvakri sem mun verða "Sjanghæjaður" í Fiskokk "med det samme".
Dagskipun gestaþjálfarans í góða veðrinu var Kópavogur. Aðalega gert til að "sleikja upp" Sigurgeir síðan í gær. Allavegana, tólf manns hlupu af stað saman í hóp, tvær snótir úr LL hlupu með út að Fossvogsbrú en 10 héldu áfram yfir í hinn dulmagnaða vog kenndan við afkvæmi sela. Þeir sem ekki tóku þátt í skipulagðri æfingu gærdagsins var "refsað" og var þeim gert að hlaupa lóðbeint upp að Kársneskirkju á þéttum hraða og sameinast svo hinum hópnum aftur við sjávarsíðuna.
Í stuttu máli; Dagur, Óli, Sigurgeir, Fjölnir og Oddgeir tóku út refsinguna. Hinir hlupu með sjávarsíðunni og önduðu að sér ferskum sjávarilminum um leið og Sigrún sagði hópnum flugfreyjusögur. Sigrún, Guðni, Sveinbjörn, Bryndís og Bjútí fóru 4 Km fram - og 4 Km til baka. Fyrir þá sem eru slakir í samlagningu gerir það RÚMLEGA 8 Km á 45 mín. "Refsingjarnir" fóru 9,3 Km á ca 43 mín. Dugleg djöfuls yfirferð það.
Á morgun verður boðið upp á hefðbundnari æfingu en síðustu tvo daga, eingöngu til að hafa fastann punkt í tilverunni fyrir þá einhverfu klúbbmeðlimi sem þola illa breytingar :-)
Boðið verður upp á Suður- Hof- Meistaravelli- Keilugranda og Akranes, allt eftir styrk og áhuga.

Hér kemur pepplag "dauðans" fyrir þá sem þurfa smá pepp vegna harðsperra.
Njótið á all-nokkrum styrk.
http://www.youtube.com/watch?v=V8rZWw9HE7o

Auf wieder sehen.
Bjútí.

Séð og heyrt...

...úr höfuðstöðvunum í dag!
Kveðja,
aðalritari

þriðjudagur, nóvember 03, 2009

Hádegisæfing 3. nóvember

Gestaþjálfari vikunnar vill lýsa yfir gríðarlegri ánægju með mætingu á svokallaða Bootcamp-æfingu eins og cargo-bræðurnir (Sigurfjöl og Geir) kölluðu hana. En þeir harðneituðu að mæta á þesslags æfingu og fóru í göngutúr með kvennaklúbbi vesturbæjar einhvern stuttan hring. Þessi æfing átti samt ekkert skylt við Boot-camp og var enginn sendur á sjúkrahús vegna ofreynslu eftir æfinguna. Gott veður, gott fólk og fullt af áhorfendum (í Perlunni). Hlaupinn var stígurinn undir Öskjuhlíðinni áleiðis að "fyrsta spretti" í Kolkrabbanum alræmda. Þar var mynduð lína/röð með 5-10 metra bili milli manna og hlaupið af stað á þægilegum hraða, aftasti maður tók þá sprett á ca. 90% fremst í röðina og koll af kolli uns Perlan blasti við. Þetta kom út á 3 spretti á mann og var vel tekið á því. Upp við Perlu voru tekin nokkur sett af armbeygjum, "Breiðdælingum", maga og framstigi. Eftir góð átök og mikið áhorf var hlaupin stysta leið heim og "Tito" rifjaður upp á grasinu. Nokkrir klúbbmeðlima hófu upp raust sína og sungu á meðan "the Tito suffering" leið hjá. Þetta vakti mikla lukku, samt aðllega hjá "Bangsamömmu" sem hló og flissaði eins og feimin fermingarstelpa að horfa á alsbera karlmenn. Í framhaldi af þessu skal tekið fram að mönnum og konum er frjálst að beita þeim aðferðum sem duga til að gleyma sársaukanum en eins og Rocky kallinn sagði hér um árið - NO PAIN NO GAIN. Morgundagurinn verður gríðar-skemmtilegur, en það skal tekið fram að hlaupin verður á þægilegum hraða einhver góður hringur og án allrar geðveiki.
Hetjur dagsins voru:
Huld hin harðskeytta, Bryndís berserkur, Bangsamamma Brútal, Guðni hinn geðveiki, Sveinbjörn "sérleið", Jói "brekkusprettur", Andrés ofurmaður og Bjöggi Bjútí.
Góðar stundir, Gestaþjálfarinn.

Mynd mánaðarins

Að horfa á myndband er góð skemmtun. Góða skemmtun!
Smellið hér:

mánudagur, nóvember 02, 2009

Hádegisæfing 2. nóvember

Undirrituðum var úthlutað að óvörum "gestaþjálfarastaða" þessa vikuna þegar í búningsklefa var komið. Dagskipunin var því brekkusprettir í kirkjugarði Fossvogsprestakalls. Ársæll var mættur snemma fullur af orku og hljóp sem eldibrandur inn Fossvog með bros á vör, enda ekki furða því meistarinn sá ber titilinn "Afi" frá og með deginum í dag og vilja allir FISKOKK meðlimir óska honum innilega til hamingju með það. Jói ljósamaður fór á eigin vegum í brekkuspretti í kirkjugarðinum. Guðni, Dagur, Huld, Óli, Sveinbjörn, Bangsamamma (S. Birna)og Bjútí fóru líka í brekkuspretti í kirkjugarðinum. Bjútíið kynnti "nýja" brekku fyrir megninu af hópnum. Brekkan sú er bæði löng og brött og svo erfið að hún er þegar farin að valda vinslitum. Allavegana lýsti "Bangsamamman" því yfir að vinskap hennar og Bjútí væri lokið hér með. Það er því ljóst að með þessu áframhaldi verður Bjútí ekki vinamargur í vikulok.
Á morgun verður boðið upp á þrekæfingu og skemmtilegar sprettaæfingar (stuttir sprettir og sprengja) og mannskapurinn hvattur til að vera með vettlinga þar sem það er þægilegra þegar teknar eru armbeygjur. Einnig verður "Tito" rifjaður upp.
Kv. Bjútí