föstudagur, janúar 31, 2014

Föstudagur 31. jan - Að sinna erindum í bæjarrúnti

Félagarnir Ívar, Dagur og Oddgeir sáu um hlaupin í dag á meðan Sveinbjörn og Jói sáu um aðra hreyfingu.

Einn hlauparanna átti brýnt erindi í Tryggingastofnun og var því ákveðið að stilla bæjarrúntinn af í samræmi við það.  Þar komu menn hins vegar að lokuðum dyrum rétt fyrir hálf eitt.  Í ljós kom að afgreiðslan er opin á föstudögum frá 10 til hvorki meira né minna en 12.  Þeim er átti erindið tókst hins vegar að ljúka sér af þar sem hægt var að koma bréfi því er hann hafði meðferðis í þar til gerða lúgu.  Við það hélt hópurinn sína leið, glaður í bragði.

Bæjarrúnturinn endaði síðan í tæplega 8 km.

fimmtudagur, janúar 30, 2014

Fimmtudagur 30. jan - Góðverk dagsins

Mætt í dag voru Úle, Dagur, Oddgeir og Síamssystur.  Cargobræður komust ekki þar sem þeir eru enn að jafna sig eftir átök þriðjudagsæfingarinnar (að sögn kunnugra).

Rangsælis hringur um flugvöllinn.  Á horni Hofsvallagötu og Hringbrautar skildu leiðir.  Síams fóru Hofsvallagötu en drengirnir héldu áfram, annars vegar niður Kaplaskjólsveg og hins vegar niður Meistaravelli.  Það runnu tvær grímur á Dag (setti upp kindarlegan svip) þarna á horninu þegar hann áttaði sig á því að hann ætti að fara tempó með drengjunum en ekki rólegt með stelpunum.  "Ég hafði hugsað mér að fara með stelpunum" sagði hann þá.

Drengirnir náðu Síams rétt eftir Dælustöðina.  Verður ekki látið upp hér hvað þær voru að gera þegar þeir komu að þeim!

Dagur hafði enn tíma til að vinna góðverk og það tókst.  Fyrrum ráðherra var á hlaupum við Þyrluþjónustuna.  Degi fannst hann fara fullt hægt yfir og linnti ekki látum fyrr en honum hafði tekist að fá hann til að auka hraðann og halda honum að Kafara.  Að vísu var fyrrum ráðherra þá kominn í mikla andnauð, en Degi var alveg sama.  Hann hafði náð sínu fram og var bara býsna ánægður með þetta allt saman.

Alls 8-9 km.

föstudagur, janúar 24, 2014

Föstudagur 24. jan - Bannað að skilja eftir

Síamssystur heiðruðu samkomuna í dag ásamt Úle og Oddgeiri.

Fóru bæjarrúnt, enda föstudagur.  Síamssystur kvörtuðu sáran undan því að vera skildar eftir á hlaupum.  Það má ekki gerast og hlýddu Úle og Oddgeir skilyrðistlaust, enda þægir drengir.

Rúmlega 7 km

fimmtudagur, janúar 23, 2014

Fimmtudagur 22. jan - Fimm á tempói

Gæðaæfing í dag með þeim Þórólfi, Degi, Ívari, Úle og Oddgeiri.

Flugvallarhringur um Kaplaskjól (hjá sumum) og Meistaravelli (hjá hinum) með sambærilegum sprettköflum og verið hafa á boðstólum upp á síðkastið.

Alls frá 10,5 km til 11,0 km.

miðvikudagur, janúar 22, 2014

Miðvikudagur 22. jan - Tveir spaðar

Tveir spaðar hlupu í dag, Dagur og Oddgeir.  Hlupu stuttan flugvallarhring, um Suðurgötu, kátir og sprækir.

Alls 7 km + planki.

Jói var svo sjóðheitur á kantinum.

þriðjudagur, janúar 21, 2014

Þriðjudagur 21. jan - Æfing til heiðurs Alice Cooper

Þessi mættu í dag: Þórólfur, Fjölnismaður, Dagur, Ívar, Oddgeir og Katrín Edda.

Katrín Edda snéri á strákana og fór snemma af stað, var að ljúka sinni æfingu þegar þeir voru að gera sig klára.  Strákarnir vissu að í dag væri þriðjudagur og að á þriðjudögum er ætlast til þess að menn hafi einhver gæði í æfingunum.  Dagur var alveg með á hreinu hvað yrði á dagskránni; Cooper-testið!  Það felur í sér 12 mínútna "all in" sprett sem síðan er endurtekinn að einhverjum tíma liðnum og framfarir (eða afturfarir) þannig mældar.  Hefðbundinn rangsælis hringur um flugvöllinn um Hofsvallagötu.  Cooper-testið hófst svo á mótum Hofsvallagötu og Ægisíðu og lauk meira og minna hjá mönnum við Þyrluþjónustuna, sem er vestan við braut 01.  Verður að segjast eins og er að menn voru bara býsna sprækir!

Til stendur að halda Cooper-testið mánaðarlega fram á vor til að mæla árangur manna og kvenna, m.a. þeirra sem ætla sér í maraþon á næstunni.

Alls rúmlega 8 km.

mánudagur, janúar 20, 2014

Mánudagur 20. jan - 5+1

Ágæt mæting í dag, 5+1: Dagur, 1/2 Cargo kóngur, Úle, Ívar, Oddgeir og Huld.

Mismikill metnaður í dag, sumir fóru langt, aðrir styttra, sem er bara í fínu lagi.  Sumir hlutu drjúgan spöl um helgina.

Þeir sem lengst fóru náðu góðum 9 km.

laugardagur, janúar 18, 2014

Föstudagur 17. jan - Vörutalning og árshlutauppgjör

Bæjarrúntur, þar sem Síamssystur, önnur Cargo systra, forsetinn og Oddgeir mættu.

Frábært veður, hlýtt og rjómalogn.  Það varð tilefni til bölsýni af hálfu Cargo systur, sem óttast að okkur verði refsað í sumar með leiðinlegru veðri vegna þess góða veðurs er nú ríkir.

Í höfuðstað tóku hin Cargo systirin og JB Run á móti hópnum.  Vambirnar voru vel útkýldar og þeir í óðaönn að stanga úr tönnunum.  Er gengið var á þá af hverju þeir kysu frekar óhollustu í stað hreyfingar brugðu þeir fyrir sig bókhaldstungumáli, að þeirra hefði verið þörf í mötuneytinu vegna vörutalningar á frönsku kartöflunum og árshlutauppgjöri þar að lútandi.

Alls 8,5 km.

fimmtudagur, janúar 16, 2014

Fimmtudagur 16. jan - Gæði, gæði, hraði

Orðið yfir æfingu dagsins er gæði, a.m.k. fyrir suma.  Til æfingar mættu Þórólfur, Dagur og Oddgeir.  Sami hringur og á þriðjudaginn, með sömu sprettútúrdúrunum, en á miklu meiri hraða.

Alls 10 km.

miðvikudagur, janúar 15, 2014

Hagsmunasamtök FISKOKK

Mættir: Dagur, Ívar, Óli forseti og Sigurgeir.

Mættum Þórólfi þegar við vorum að byrja og þá var hann að klára sína æfingu. Sveinbjörn var líka á svæðinu og fór á brettið inni.

Undirritaður mætti of seint á æfingu! Fór kött-inn til að reyna ná þeim sem fóru á réttum tíma, hópurinn sameinaðist hjá HÍ þar sem þeir bættu aðeins við til að gefa mér færi á því að eiga með þeim smá moment. Þessi gæðastund var því miður ekki löng þar sem þeir voru á leið vestur í bæ á meðan undirritaður fór Suðurgötu. Óli forseti dró strákana sína 9,5 km og sagði að þeir væru með fókusinn í lagi, enda er undirbúningur fyrir undirbúning á fullu.

Miklar umræður eru í gangi varðandi að færa heimasíðu FISKOKK á Facebook og hafa verið stofnuð hagsmunasamtök FISKOKK á Facebook. Þessi hópur stefnir á að afhenda Óla forseta undirskriftalista á Bessastöðum í næstu viku þar sem farið verður fram á að stjórn FISKOKK verði komin með heimasíðuna á Facebook fyrir 1. febrúar 2014.

Kv. Geiri CK

þriðjudagur, janúar 14, 2014

Tímamót...

Mættir: Dagur, Ívar, Sveinbjörn og CK (báðir).

Þegar allir voru klárir í klefanum sáum við Sveinbjörn á stuttbuxum og bol, enda ekki kallaður Chuck-arinn fyrir ekki neitt! Reyndar kom svo í ljós að hann ætlaði að skokka inni á brettinu...

Restin fór kött-inn þar sem var ákveðið að hugsa málið fram að bakarí og sjá hvernig stemmarinn væri í hópnum. Það er greinilegt að allir voru hungraðir í gæðaæfingu. Endum á gæðaæfingu þar sem allir fóru 3 hörkuspretti.

Núna verða gæðaæfingar á þriðjudögum og fimmtudögum fyrir þá sem hafa áhuga á því. Einnig er planið að fara taka langar æfingar á laugardögum.

Það kom upp umræða um heimasíðu klúbbsins og hvort það væri ekki komin tími á að fara með hana yfir á Facebook. Allir voru sammála því að það væri komin tími á það og nú setjum við pressu á stjórnina að fara í það mál, þrátt fyrir að 2 af 3 í stjórn eru ekki á Facebook!

Kv. Geiri CK

mánudagur, janúar 13, 2014

JB Run í sókn?


Dularfullur maður í svartri hettuúlpu sást á vappi við Hótel Loftleiðir í hádeginu í dag.  Þegar betur var að gáð kom í ljós að þetta var JB sjálfur – Der König - í könnunarleiðangri.  Nú vill svo til að undirritaður er félagi í JB Run og þar sem Oddur aðalritari FI Skokk var sá þriðji sem myndaði skokkhóp dagsins var ljóst að JB Run var í meirihluta.   Samkomulag náðist um að hlaupa Hofsvallahringinn.  Tveir blástakkar og svört hettuúlpa hlupu af stað út bílaplanið og hurfu fyrir hornið á skrifstofubyggingunni - út í veður og vind.

ÓB.

föstudagur, janúar 10, 2014

Föstudagur 10. jan - Farið um langan veg

Bæjarrúntur á hálku og dálitlum vindi.  Forsetinn mætti.  Það gerðu einnig Ívar, Oddgeir, Cargo gellurnar og Dagur.

Það bar helst til tíðinda í dag að á Sæbrautinni varð á vegi hópsins maður nokkur á hlaupum.  Hann kvaðst ætla að hlaupa 50 km í dag, enda 50 ára í dag.  Hann var búinn með u.þ.b. 30 km þegar hér var komið við sögu.

8 km í dag.

miðvikudagur, janúar 08, 2014

Þriðjudagur 7. jan - Maraþonpælingar

Fjórmennt í dag: Dagur, Ívar, Cargo prinsinn kenndur við glamúr og Oddgeir.

Nokkur umræða átti sér stað um hugsanlegt maraþonhlaup á vormánuðum.  Ljóst er að einhverjir í hópnum iða í skinninu og langar í hlaup. Hvaða hlaup verður fyrir valinu á eftir að koma í ljós en ákvörðun verður væntanlega tekin fljótlega.

Rétt um 8 km.

mánudagur, janúar 06, 2014

Mánudagur 6. jan - Ekki fara í Kópavoginn!

Ágætis mæting:  Þórólfur, Dagur, Cargo prinsarnir, Ívar, Oddgeir og Síamssystur.

Ákveðið var á síðustu stundu að beygja af leið og hlaupa inn í Fossvogsdalinn í von um skjól.  Þegar komið var að Víkinni var beygt til hægri og upp í Kópavoginn.  Þar linnti mönnum illa og var því ákveðið að koma sér strax aftur til Reykjavíkur.  Sigurgeiri sárnaði nokkuð en tárin höfðu þornað þegar komið var aftur að höfuðstöðvum.

Rúmlega 9 km.

fimmtudagur, janúar 02, 2014

Fyrsta æfing ársins!

Mættir: Dagur, Óli, Fjölnir, Sigurgeir og Ívar.

Allir nema Ívar mættu aðeins of snemma, ca. 20 mín fyrr, og fór þ.a.l. á undan af stað! Nýtt ár nýir tímar, maður spyr sig! En til að það sé nú alveg á hreinu þá eru æfingar áfram kl. 12:08

Ég veit því miður ekki hvað Ívar gerði en giska á suður eða hofs.

Þeir sem voru of snemma á ferð fóru Hofs, kött-inn! Eins og svo oft á þessum tímamótum voru markmið ársins rædd fram og til baka. Einnig var farið yfir áramótaskaupið, allir sammála um að það var með besta móti þetta árið.

Fréttir bárust af fv. formanni (Jón Lennon) okkar sem var á landinu yfir jólin. Það hefur lítið farið fyrir hlaupum hjá honum vegna tímaleysi, endalausar afsakanir.

Kv. Geiri CK