Mættum í "Kallaveðri" (þ.e. stuttbuxna) og tókum góða æfingu , ég og Óli Briem. Sigurgeir tók Suðurgötuna, enda með fótboltameiðsl. Undirrituð og Óli voru staðráðin í að taka kolkrabbann, enda engin ástæða til að vera að hanga eitthvað inn í nýja árið. Brautir auðar og ekki mikill vindur og Óli ca. 15-20 sek. á undan í öllum sprettum. Sammæltumst um að halda áfram í armbeygjuprógrammi eftir að því lýkur formlega. Góð samviska inn í helgina.
Hvar voru hinir þegar þetta fór fram, mér er spurn?
Alls 7,74K
Kveðja,
Sigrún
9 ummæli:
Stórt er spurt en svarið einfalt hvað mig varðar.
...að skottast á náttfötunum heima - nývaknaður.
Kveðja,
Dagur
ég var í fríi eins og Der Trainer og fór því á mitt vanalega bretti, hehe. Kem sterk inn í næstu viku. Er samt alveg að koksa á þessum armbeygjum, en er ekki búin að gefast alveg upp samt, en þetta er langtum frekar af vilja (??!) en mætti.
Svo mælti BM - sorrý
Bannað að koksa á beygjunum
búin að lofa meyjunum
miklum árangri í sjómann-i
jafnvel honum jóhann-i
svifta þær síðan treyjunum.
Höf.kunnur.
Aðal
Er ekki annars "p" í svipta? Whatever.
:=)
Aðal
Stórkostlegur kveðskapur með péi. Þú áttar þig á því að sumir eru í vinnu og eiga jafnvel svolítið óhægt um vik að skreppa frá í hádeginu :-).
það er komin tilkynning um Asca hlaupið, það verður 1.mars í Frankfurt, jeremías, það er að skella á
BM
Sorry, það á að vera 1.3 - 31.5.09 nákvæm tímasetning er sum sé ekki komin, hjúkk.
BM
Dísös, hélt ég þyrfti að fara akút til Póllands í detox!
SBN
Skrifa ummæli