föstudagur, júlí 31, 2009

Reykjavíkurmaraþon

Ágætu hlauparar!

Eftir ýtarlegar tilraunir til að halda óbreyttu því ferli sem verið hefur á aðkomu FI - SKOKK að þátttöku starfsmanna Icelandair Group í RM undanfarin ár neyðumst við til að lúta breyttu landslagi.
Ástæðan er að Icelandair Group er ekki lengur stuðningsaðili RM heldur systurfélagið Víta. Þrátt fyrir þeirra góða vilja og áhuga eru sparnaðarraddir háværari og við hlauparar gjöldum þess. 
Við erum engu að síður bjartsýn og stórhuga að eðlisfari og vonumst til að geta endurnýjað haldgóðan samning að ári.

Sjóðsstaða FI - SKOKK er hins vegar það góð að FI - SKOKK bíður félagsmönnum fría þátttöku í RM 2009.

Vinsamlega skráið ykkur á blogginu :   http://fiskokk.blogspot.com/
Bloggskráning auðveldar myndun sveita ef áhugi er fyrir hendi, því er nauðsynlegat að skrá vegalengd sem hlaupin er.

FI - SKOKK klúbbmeðlimir skrá sig á vef Reykjavíkurmaraþons : http://www.marathon.is/
líkt og aðrir þátttakendur í RM en fá síðan þátttökugjald endurgreitt inn á bankareikning sinn frá Sveinbirni gjaldkera FI - SKOKK.
Vinsamlega sendið Sveinbirni póst á :  segilson@icelandair.is
Nauðsynlegt er að taka fram reikningnúmer, kennitölu og upphæð þátttökugjalds (vegalengd).

Óska ykkur velgengni í RM
F.h. FI - SKOKK, Anna Dís

9 ummæli:

Icelandair Athletics Club sagði...

Anna Dís 10K

Nafnlaus sagði...

Sigurgeir 21K

Icelandair Athletics Club sagði...

Sigrún og Oddgeir 10K

Nafnlaus sagði...

Bryndís 10km

Nafnlaus sagði...

Rúna Rut 42,2 KM

Berglind sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Berglind sagði...

Berglind 21 km
Ef þið hafið áhuga á að hlaupa til góðs þá getiði skráð ykkur á facebook: http://www.facebook.com/home.php?#/event.php?eid=121426584280&ref=ts

Nafnlaus sagði...

Arsæll 21k

Nafnlaus sagði...

Fjölnir 10K