föstudagur, maí 20, 2011

Hádegisæfing 20. maí

Óli sýnir gallann, hróðugur.




Óli og Johnny ræða pósur fyrir auglýsinguna. "Já, það er best að ég sé fremstur, ég er með sporin á hreinu og þið labbið inn í svona spíss á eftir mér....þaggi?"





Mættir í stóra sundrungarhlaupið: Þórdís, Sveinbjörn, Fjölnir, Sigurgeir, Oddgeir, Huld, Sigrún (nafnan) og mamman. Mættir í ástandsskoðun: Óli og Johnny (stóðust skoðunina) og Bjössi Grensás var á lóðaríi. Hann tekur ekki nema 110kg í liggjandi bekk (9*), sem er náttúrulega ekki neitt!


Allavega...mikil sundrung ríkti í hópnum og fóru allir tvist og bast og út í loftið. Eini fasti punkturinn var þó að Óli og Johnny (sem munu koma fram í næstu Dressman auglýsingu) tóku sig helvíti vel út í sænska landsliðsgallanum, hverjum þeir munu ferðast í til og frá keppnisstað, ásamt liðsfélögum sínum.




Alls um 7-8K


Kveðja,


SBN

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já Sæll hvað þetta eru hott fýrar!

kv.
jöb

Nafnlaus sagði...

Halldór í Henson ku vera með auglýsingasamning á borðinu við þessa myndarlegu Dressmenn -