fimmtudagur, júní 28, 2012

Fimmtudagurinn 28. júní - Létt tempóhlaup

Mætt: Ársæll (hættur á kexkúr), Guðni sub40, Sigrún, Oddgeir og María (sér).  Einnig sást til Þórdísar á hlaupum við rætur Öskjuhlíðar undir lok hefðbundins æfingatíma.  Veður einstaklega gott.  Tekin voru 2x5 mín tempóhlaup (byrjað á Hofsvallagötu og endað ca. við dælustöð).  Ársæll var mjög sprækur og því ekki nema von að maður spyrji sig af hverju hann hafi ákveðið að hætta á kexkúrnum?  Hann einn getur svarað því.

Virðingarfyllst,
ritarinn

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það væri samt fínt ef Ársæll borðaði aðeins meira kex, hann er að verða of góður! ;)
SBN