miðvikudagur, maí 27, 2009

Hádegisæfing 27. maí



Mættir í blíðskaparveðri: Dagur, Kalli, Sigurgeir, Fjölnir, 'Oli (um ormagöng), Bryndís og Sigrún og Jói (sér). Fórum Kaplaskjólið með lengingu og mættum Fjölni á bakaleið en Óli kom hinsvegar á brjáluðu tempói og náði okkur hjá flugbrautarenda. Dagur er að undirbúa sig fyrir innlimum í Búddisma og hlustar á pistla þess efnis á leið til vinnu. Sigurgeir er enn að reyna að ná Sigrúnu í kílómetrum. Fjölnir er hinsvegar að jafna sig eftir veikindi og er hér ein limra að því tilefni:


Lesið lítinn Fjölnispistil
lasinn hann varð, fékk ristil.
Marinn á baki
gagnslaus á laki
linur, með herðakistil.
Alls 9,3-K

Kveðja,

Sigrún

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þátturinn á rúv

http://dagskra.ruv.is/ras1/4466848/2009/05/24/

og fyrirlestur Jack Kornfield
http://www.mefeedia.com/entry/zencast-189-compassion/13178281

Nafnlaus sagði...

Það eru aldeilis móttökur sem maður fær frá Aðal þegar maður snýr aftur. Veit ekki hvort þetta er til að efla mann eða letja

kv, fþá

Icelandair Athletics Club sagði...

Þetta er hugsað sem hvatning! :)