fimmtudagur, apríl 29, 2010

Næsta samskokk er á vegum ÍR

Samskokk laugardaginn 1. maí á vegum ÍR skokk.
Við ÍRingar erum þekkt fyrir að velja þægilegu leiðina! Síðasta samhlaup tókst mjög vel og því höfum við ákveðið að gera alveg eins!!

Farið verður frá Árbæjarlaug / Árbæjarþreki kl. 09.00.


Flestar laugar bæjarins eru lokaðar en Árbæjarlaug opnar kl. 10.00. Árbæjarþrek er beint á móti Árbæjarlaug og Beggi hefur verið svo vænn að heimila okkur salernisafnot þar fyrir hlaup.

Skipulag hlaupsins:
Boðið verður upp á fjórar vegalengdir í Heiðmörk – frábær æfing fyrir Laugavegsfara og aðra utanvegahlaupara, sjá kort

Allir hlaupa saman frá Ábæjarlaug, fram hjá hesthúsum og að bílaplani í Heiðmörk. Fyrstu þrjár leiðirnar eru þær sömu og farnar voru í síðasta samhlaupi.

Leið 1, 12 km: Umhverfis Elliðavatn. Ekki merkt á korti.
Leið 2, 17 km: Dökkrauður, minnsti hringurinn á kortinu.
Leið 3, 23 km: Dökkrauður, minnsti hringur á korti ásamt ljósrauðum hring.
Leið 4, 30 km: Ysti hringurinn á myndinni. Farið út af leið 3 á efsta bílaplani, þaðan er veginum fylgt inn undir Vífilstaðahlíð, meðfram Vífilstaðavatni og þaðan reiðastíg meðfram golfvellinum í Garðabæ og Kópavogi, gegnum Seljahverfið og svo sem leið liggur í Árbæjarlaug.

Óvíst er með drykkjarstöðvar og fólk hvatt til að hafa með sér næga orku. Boðið verður upp á „héra“ – þ.e. „þekkta“ ÍRinga sem þekkja hverja leið. Hægt er að fylgja þeim eftir ef fólk er hrætt við að villast.

Hlökkum til að sjá ykkur öll!

Með kveðju frá ÍR skokk.

Engin ummæli: