Gaman er að spá í hvaða markmið hver og einn setti sér fyrir hlaupaárið. Sumir ná sínu markmiði, aðrir hafa enn smá tíma (til 31. des.)og einstaka fara framúr sínum áætlunum, t.d. ef vera skyldi að hafa óvart lent í maraþonprógrammi. Endilega setjið inn töluna sem þið ætluðuð að hlaupa og hver talan er miðað við 19. nóvember, í dag. Athugið-engar hraðatakmarkanir eru í gildi við þessa gagnaöflun.
Góða helgi,
Sigrún
6 ummæli:
Best að ég byrji.
Ætlaði 2010Km
19. nóv. 2551
SBN
Glæsilegt Sigrún.
Ég ætlaði 2.000 á árinu 2010, komin með 19.nóv 1771,16 km
Ég þarf því að hlaupa rétt rúmlega 38K á viku, fínt að fá svona áminningu, ég næ þessu, ekki spurning ;)
Kveðja
RRR
Ég er búinn með 1325 km og ætli ég stefni ekki bara á 1500 km :o)
Kv. Sigurgeir
Kominn með 1651 en ætlaði 2010
Þarf að vera ansi duglegur til að ná því :-)
kv, fþá
Ætlaði 2010km og er kominn eitthvað yfir 2200km. Á bara eftir að fara undir 40mín í Gamlárshlaupinu - vona að verðrið verði gott.
Markmiðin voru 3. Að fara 1/2 á undir 2 - náði því
Að fara 10 undir 50 - ekki komið ennþá.
Og fyrir meiðsli og sumarfrí var stefnan að ná 1.200 km en var lækkað í 1.000 eftir sumarfrí. Er kominn í 901,98 til að vera ferlega nákvæmur.
jöb
Skrifa ummæli