Vegna endurbóta á Hótel Loftleiðum munum við missa þá aðstöðu sem við höfum haft í sundlauginni frá og með áramótum og þann tíma sem endurbæturnar vara, að minnsta kosti þrjá mánuði.
Lausn á þessu aðstöðuleysi er fundin.
Svali Björgvinsson, starfsmannastjóri Icelandair og Valsmaður hefur samið við Knattspyrnufélagið Val um að við fáum aðgang að búnings- og sturtuklefunum hjá þeim í hádeginu meðan á endurbótunum á hótelinu stendur. Frá og með 3. janúar næstkomandi.
Hádegisæfingarnar halda þannig áfram óbreyttar með óbreyttri tímasetningu 12:08, nema nú frá Valsheimilinu. Þeir sem taka þátt frá aðalskrifstofu þurfa að gera ráð fyrir ferðatíma.
Kveðja,
Dagur, formaður
3 ummæli:
Hvað kostar það að nota Valsheimilið? Er það kannski í boði Icelandair?
Kv. Sigurgeir
Frábært, nú verður æft sem aldrei fyrr hjá séra Friðriki!
kv, fþá
Glæsilegt!
kv.
JÖB
Skrifa ummæli