þriðjudagur, september 24, 2013

Þriðjudagur 24. sept - 3X1600

Í dag mættu Dagur, Úle, Huld, Ársæll, Matti og Oddur.

Nú skyldi taka 3X1600m spretti á áætluðum ½ maraþons keppnishraða hvers og eins.  Ársæll og Matti ákváðu reyndar að taka ekki þátt í þessari vitleysu og fóru um Suðurgötu.  Hin héldu áfram, byrjuðu tempósprettina eftir að komið var yfir Hofsvallagötu, og beygðu af Hringbraut við Meistaravelli.
Vegalengdir frá ca. 7km upp í ca. 9,5km.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú meiri vitleysan..og hvar voru kóngarnir? Eru þeir orðnir að orðrómi einum saman?
Kveðja-
SBN

Nafnlaus sagði...

Uppvaskið eftir hann Bertel hefur greinilega verið meira en þeir bjuggust við!

Nafnlaus sagði...

Kings ætla að taka Dag á þetta og tjá sig ekki um þetta fyrr en eftir Brussel maraþonið :o)

Kv. CK