fimmtudagur, apríl 15, 2010

Söfnum dóti fyrir ABC skólann í Senegal

Af mywork-langar að vekja athygli á þessu.
Kveðja, Sigrún
14.04.2010 14:19

MyWork barst tilkynning frá ABC Hjálparstarfi:

Næstkomandi þriðjudag 20. apríl leggur Landhelgisgæslan af stað með varðskip til Senegal. Þau hafa verið svo vinsamleg að bjóða ABC að senda dót fyrir skólann okkar í Dakar með skipinu.

Við höfum fengið lista yfir það sem skólinn þarfnast mest og þar sem við höfum mjög knappan tíma til að safna þessu langar okkur að vita hvort þið eigið eitthvað vel með farið í geymslum sem þið mynduð vilja gefa.

Það sem væri frábært að fá er eftirfarandi:

•Skóladót eins og stílabækur, pappír, trélitir, pennar, blýantar.
•Leikföng aðallega fyrir 3ja -7 ára börn en líka fyrir eldri börn.
•Fótboltar, körfuboltar, blakboltar
•Ýmisskonar borðspil; skákborð, UNO ofl.
•Fatnaður aðallega fyrir 15-17 ára drengi en líka fyrir yngri börn
•Íþróttaföt fyrir börn og unglinga
•Notað borðtennisborð og billjard borð fyrir götudrengina
•Bókahillur, skólaborð og stólar
•Stór prentari til að prenta skólagögn
•Eldhúsdót, frystir, ísskápur, bakaraofn, borð, stólar
•Reiðhjól fyrir börn og unglinga
Vinsamlegast sendið þennan texta áfram á þá sem þið þekkið og sérstaklega ef þið þekkið heildsölur og verslanir sem gætu átt eitthvað sem þeir vilja gefa á lager.

Vinsamlegast hafið samband við Margréti í síma 4140992 eða með því að svara þessu maili. Við munum taka á móti dótinu næstkomandi föstudag 16. apríl frá kl 13:00-18:00 í Nytjamarkaðnum Skútuvogi 11.

Smelltu hér til að skoða tilkynningu um söfnunina á vef ABC

Engin ummæli: