föstudagur, desember 28, 2012

Alvöru hádegisæfingin 28. desember

Alvöru hádegisæfinguna tóku þrjú á palli í vosbúð, slabbi og kulda.  Huld, Sigrún og Oddgeir lögðu af stað á tilsettum tíma þegar ljóst var að kuldaskræfurnar treystu sér ekki út, þær vildu sem sagt hafa það notalegt og kósý á spandexskýlunum sínum í spa-inu (sjá færsluna hér að neðan).  Það tók að vísu nokkra klukkutíma að ná upp hita í tær þriggja á palli eftir æfingu, en er það ekki svo að stundum verða menn að færa smá fórnir til að ná árangri?

Ritarinn.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég trúi þessu ekki þar sem ég stóð fyrir utan kl. 12:08 og sá ykkur ekki! Ekki vera setja svona lygi á síðuna okkar :o)

Kv. Sigurgeir

Nafnlaus sagði...

Skandall að Dagsi og Geiri hafi hlaupið á bretti!

fþá

Nafnlaus sagði...

Engu logið Bretta-Geiri :)

Þrjú á palli mættu á tilsettum tíma og lögðu af stað á tilsettum tíma, eftir að hafa beðið í nokkrar mínútur í þeirri veiku von að einhverjir fleiri treystu sér út.

Oddgeir