Hið árlega Icelandairhlaup verður haldið í 19. sinn fimmtudaginn 2. maí kl. 19:00. Undirbúningur hlaupsins er nú þegar í fullum gangi. Eins og áður vantar okkur röska félagsmenn til að vinna við hlaupið á hlaupadag enda í mörg horn að líta. Sú nýbreytni verður á hlaupinu í ár að notast verður við flögur við tímamælingu.
Félagsmenn sem geta mætt til vinnu 2. maí eru vinsamlegast beðnir um að skrá nafn sitt í ummælakerfið hér að neðan. Mikilvægt er að félagsmenn mæti tveimur tímum fyrir hlaup eða kl. 17:00 svo hægt verði að útdeila verkefnum í tíma. Mæting er í höfuðstöðvar félagsins.
Við bendum á
að þar sem hlaup þetta er skipulagt af skokkklúbbnum eru félagsmenn hvattir til þess verja frekar kröftum sínum þetta
kvöld til vinnu við hlaupið í stað þess að taka þátt í hlaupinu sjálfu. Félagsmenn eru jafnframt hvattir til að fjölmenna í staðinn í hádeginu daginn eftir og taka svokallað "the day after run" þar sem sami hringur er hlaupinn á tíma.
Þeim félagsmönnum sem vinna við hlaupið mun standa til boða að kaupa hágæða hlaupafatnað frá CW-X með styrk (niðurgreiðslu) frá skokkklúbbnum. Hlaupafatnaðurinn verður til sýnis og mátunar í hófi sem haldið verður strax að hlaupi loknu.
Þeim félagsmönnum sem vinna við hlaupið mun standa til boða að kaupa hágæða hlaupafatnað frá CW-X með styrk (niðurgreiðslu) frá skokkklúbbnum. Hlaupafatnaðurinn verður til sýnis og mátunar í hófi sem haldið verður strax að hlaupi loknu.
Með von um góð og skjót viðbrögð,
Stjórn Skokkklúbbs Icelandair
20 ummæli:
Anna Dís mætir
SBN mætir.
Sigurgeir mætir :o)
Guðni mætir
Ágústa og Sigurborg mæta
Viktor mætir
Oddur nýliði mætir
Ívar mætir
Ægir mætir kem á hjóli frá kef.
Oddný mætir
Wheelie mætir!
Formi mætir að sjálfsögðu.
Guðmunda mætir ef ekki í flugi.
Jakob Schweitz mætir
Huld líka.
Þórólfur mætir
Sigrún E mætir ..
Gísla Rún mætir
Bryndís mætir.
Sigríður Sól mætir
Skrifa ummæli