föstudagur, desember 20, 2013

Föstudagur 20. des - Öfuguggi

Stjórnin "rúlaði" í dag, svo einfalt var það.  Hún mætti öll eins og hún lagði sig ásamt einum kvenkyns aðdáanda.

Bæjarrúntur með þrælöfugum "dead-ara" í Tjarnargötunni þar sem ekki tókst að taka hann í Aðventuhlaupinu í gær eins og oftast er gert.  Þrælöfugi "dead-arinn" var í stuttu máli þannig að í stað þess að enda við Ráðhúsið þá var byrjað þar og hlaupið á afturábak upp að hinu hefðbundna rásmarki.  Í ljós kom að Oddgeir var mesti öfugugginn.  Úle og Íbbi voru næstmestu öfuguggarnir og kvenkyns aðdáandinn var minnsti öfugugginn.

Rúmlega 8 km.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst mjög mikilvægt að það komi fram að það var ég sem mældist minnsti öfugugginn.
Kv. Ég (ég sjálf)